Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Vodafone semur við Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka

  • Samningurinn er um umsjón með fyrirhugaðari skráningu Vodafone í kauphöllina Nasdaq OMX Iceland.
  • Stefnt er að skráningu félagsins fyrir árslok 2012.
Vodafone á Íslandi hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til að vinna að undirbúningi skráningar Vodafone í kauphöllina Nasdaq OMX Iceland. Í tengslum við fyrirhugaða skráningu er gert ráð fyrir að fram fari almennt hlutafjárútboð þar sem fjárfestum og almenningi gefst kostur á að skrá sig fyrir hlutum í félaginu. Markmiðið með skráningunni er að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins og gefa fjárfestum kost á að fjárfesta í öflugu félagi á sviði fjarskipta.

Samhliða hefur verið samið um að Íslandsbanki annist sölu á þeim bréfum Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) sem seld verða í útboðinu, en sjóðurinn er aðaleigandi Vodafone í dag.

Leitað var tilboða meðal þeirra aðila hér á landi sem veita ráðgjöf um skráningu á hlutabréfamarkað og var í kjölfarið ákveðið að ganga til viðræðna við Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um að taka að sér umsjón með skráningunni. Sérfræðingar Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka hafa langa reynslu af því að vinna með fyrirtækjum við hlutafjárútboð og skráningar, bæði hér heima og erlendis. Stefnt er að skráningu félagsins fyrir árslok 2012.

Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone:
„Við erum afar ánægð að ganga til samstarfs við Íslandsbanka um skráningu félagsins. Framundan eru spennandi tímar fyrir Vodafone. Fyrirtækið er vel í stakk búið til skráningar á hlutabréfamarkað og tímapunkturinn er réttur til að fá fleiri fjárfesta að fyrirtækinu. Stjórnendur og starfsfólk Vodafone hlakka til að takast á við þetta verkefni. Skráningu á hlutabréfamarkað fylgir mikil ábyrgð en ég er sannfærður um að þetta skref er rökrétt fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu Vodafone á Íslandi.“

Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri markaða hjá Íslandsbanka:
„Með skráningu Vodafone í Nasdaq OMX verður stigið mikilvægt skref í uppbyggingu íslensks hlutabréfamarkaðar. Vodafone hefur náð eftirtektarverðum árangri á sínum markaði og verður mjög áhugaverður kostur fyrir fjárfesta og afar góð viðbót við vaxandi flóru fjárfestingakosta hér á landi.“Til baka

Eldri fréttir

Varasamur tölvupóstur vegna Netbanka

19.06.2013
Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst það sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka...Nánar

Nýr húsnæðissparnaður Íslandsbanka

13.06.2013
Íslandsbanki kynnir nýja sparnaðarleið til uppbyggingar á sparnaði til útborgunar á íbúðarhúsnæði.Nánar

Vel sóttur fundur um húsnæðismál

13.06.2013
Fjöldi manns sótti opinn fræðslufund Íslandbanka um húsnæðismál sem haldinn var þriðjudaginn 11. júní.Nánar

Fasteignamælaborð Íslandsbanka

12.06.2013
Fasteignamælaborðið á vef Íslandsbanka er öflug upplýsingaveita um þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Nánar

Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

06.06.2013Kauphöll
Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland í mars...Nánar