Allar færslur hafa verið leiðréttar
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag urðu villur í hugbúnaði einstakra sjálfsafgreiðslutækja þjónustuaðila sem eru með kortasamning við Borgun til þess að rangar færslur fóru fram í greiðslukortakerfum landsins. Villan hafði áhrif á um 2% debetkorta í landinu og hefur Reiknistofa bankanna (RB) í samvinnu við útgefendur og færsluhirða greiðslukorta unnið að leiðréttingu þeirra reikninga sem villan hafði áhrif á.
Þessi villa snéri að um 100 kreditkortum og um 2.700 debetkortum hjá viðskiptavinum Íslandsbanka, sem margir hverjir lentu í vandræðum með notkun þeirra.Samkvæmt upplýsingum frá RB og Borgun hafa allar færslur verið leiðréttar og eiga ekki lengur að hafa nein áhrif á notkun viðkomandi korta. Ef viðskiptavinir okkar verða fyrir frekari óþægindum vegna þessarar bilunar viljum við benda á að neyðarsími Borgunar er opinn allan sólarhringinn, þar sem hægt verður að nálgast frekari upplýsingar.
Borgun, neyðarsími: 533 1400
Íslandsbanki mun upplýsa viðskiptavini sína ef frekari vandkvæði koma upp vegna ofangreindar bilunar.Til baka
