Íslandsbanki hyggst minnka hlut sinn í Icelandair Group hf.
Íslandsbanki hefur ákveðið að bjóða til sölu 5% eignarhlut í Icelandair Group hf. Núverandi eignarhlutur bankans í félaginu er 19,99%. Sala hlutanna fer fram í lokuðu útboði í samræmi við c-lið 1. mgr. 50. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Markaðir Íslandsbanka hafa umsjón með útboðinu sem fer fram 21. og 22. júní. Endanleg stærð þess eignarhlutar sem verður seldur mun ráðast af verðtilboðum fjárfesta.
Jón Guðni Ómarsson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs Íslandsbanka:
„Íslandsbanki og Icelandair Group hafa átt farsælt samstarf síðustu ár en bankinn leiddi fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Icelandair Group hefur vegnað afar vel og er í dag í góðum rekstri. Með útboðinu er Íslandsbanki að fylgja þeirri stefnu sinni að minnka eignarhlut sinn í félögum sem hann hefur eignast og eru í óskyldum rekstri.“
