Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Íslandsbanki og Ergó styðja við Landssamband hestamanna

19.06.2012
Haraldur Þórarinsson og Birna Einarsdóttir við undirritun samningsins
Haraldur Þórarinsson og Birna Einarsdóttir við undirritun samningsins

Íslandsbanki, Ergó, fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka, og Landssamband Hestamannafélaga (LH) hafa gert með sér samstarfssamning. Samningurinn er til þriggja ára og verður Íslandsbanki aðalstyrktaraðili LH á því tímabili.

Landssamband hestamannafélaga er þriðja stærsta sérsambandið innan ÍSÍ með rúmlega 11.000 félagsmenn og 48 aðildarfélög. LH er æðsti aðili innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands um alla þætti hestaíþrótta og málefni þeim tengdum. LH sinnir hagsmunamálum sem tengjast hestaíþróttum svo sem á sviði ræktunarmála, tamninga, samgöngu- og ferðamála, landnýtinga og umhverfismála. 

Íslandsbanki og Ergó munu með stuðningi sínum við LH einnig styðja við Landsmót hestamanna sem fer fram 25. júní til 1. júlí næstkomandi. Landsmótið sem er hið 20. í röðinni verður haldið í Reykjavík en þetta er einn stærsti íþróttaviðburður landsins. 

Viðskiptavinir Íslandsbanka munu fá 20% afslátt af dagmiðaverði á Landsmóti sé greitt með greiðslukorti frá bankanum í miðasölu.

Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands Hestamannafélaga:
„Stuðningur Íslandsbanka er LH mjög mikils virði og sýnir góðan skilning á því fjölbreytta starfi sem LH stendur fyrir og tengist hestinum í íslensku samfélagi. Hestaíþróttin er eitt vinsælasta fjölskyldusportið þar sem allir geta fundið sér reiðskjóta við hæfi og þannig þroskast með samvistum við hestinn. Þá tengist hesturinn sögu og menningu okkar Íslendinga í gegnum aldirnar og stendur okkur þannig sem þjóð mjög nærri.Landsamband hestamannafélaga vill því þakka Íslandsbanka fyrir framsýni og hugrekki með því að standa við bakið á því fjölbreytta og mannbætandi starfi sem LH stendur fyrir.“

 

Til baka

Eldri fréttir

Uppfærsla á Meniga í dag

22.05.2013
Vegna uppfærslu á Meniga í dag 22. maí verður ekki hægt að nálgast gögn frá Meniga. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að...Nánar

VÍB aðalstyrktaraðili Dansa í Eldborg á Listahátíð

21.05.2013
VÍB - eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, verður aðalstyrktaraðili sýningarinnar Dansar í Eldborg: Igor Stravinsky í 100 ár sem sýnd verður 24. og...Nánar

Íslandsbanki veitir ferðaþjónustufyrirtækjum hvatningarverðlaun

21.05.2013
Íslandsbanki veitti um helgina þremur ferðaþjónustufyrirtækjum Hvatningarverðlaun Íslandsbanka. Nánar

Ísland í kjöraðstöðu til að taka þátt í uppbyggingu á Grænlandi

16.05.2013
VÍB, eignastýringaþjónusta Íslandsbanka, hélt í morgun fund um hvaða tækifæri fyrirsjáanlegar breytingar á norðurheimskautssvæðinu geta skapað fyrir...Nánar

Ráðstefna um þjónandi forystu

15.05.2013
Íslandsbanki er einn af aðalstyrktaraðilum ráðstefnu um þjónandi forystu sem fer fram 14. júní næstkomandi. Efni ráðstefnunnar er sérstaklega sniðið...Nánar