Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Afrekssjóður kylfinga stofnaður

Stofnendur sjóðsins, sem hefur hlotið nafnið Forskot, eru Íslandsbanki, Eimskip, Valitor, Golfsamband Íslands og Icelandair Group. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við þá kylfinga, atvinnumenn sem og áhugamenn, sem stefna á að komast í fremstu röð í heiminum í golfíþróttinni.

Golf verður aftur keppnisgrein á Ólympíuleikunum árið 2016 eftir rúmlega100 ára hlé. Sjóðurinn styður íslenska kylfinga til að þeir geti náð því markmiði að komast á Ólympíuleikanna en til þess verða þeir að ná árangri á Evrópsku mótaröðinni eða PGA mótaröðinni. Sjóðurinn mun beina sjónum sínum að tveimur til fimm kylfingum á hverjum tíma og leitast við að gera þeim auðveldara fyrir að æfa og keppa við bestu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi.

Stofnendur sjóðsins hafa um árabil stutt við íslenska íþróttamenn og hafa kylfingar notið góðs af stuðningi þeirra á liðnum árum. Með því að sameina krafta þessara aðila verður slagkrafturinn enn meiri og vonandi að þessi samtakamáttur fleyti okkar bestu kylfingum áfram inn á nýjar brautir.

Stofnaðilar sjóðsins leggja mikla áherslu á mikilvægi þess að sterkar fyrirmyndir og það að eiga afreksmenn í íþróttum eru eina mikilvægustu þættirnir í því að fá börn og unglinga til að sinna íþróttum. Því er litið á sjóðinn sem mikilvægt skref til að efla íþróttir barna og unglinga og hvetja þá til dáða.

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að styðja eftirtalda kylfinga á árinu 2012 og nemur heildarstyrkurinn um 15 milljónum króna. Þessir aðilar eru eftirfarandi:

  • Birgir Leifur Hafþórsson GKG 
  • Tinna Jóhannsdóttir GK 
  • Stefán Már Stefánsson GR 
  • Ólafur Björn Loftsson NK 
  • Þórður Rafn Gissurarson GR

Stífar kröfur eru gerðar til þessara íþróttamanna um ráðstöfun þessara styrkja og ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir verkefni sín auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern kylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar.

„Þessi styrkur er lífsnauðsynlegur fyrir okkur sem erum að berjast áfram í atvinnugolfinu. Að koma svona verkefni á laggirnar mun hafa í för með sér mjög jákvæða keðjuverkun fyrir alla afrekskylfinga á Íslandi. Nú er loksins komið teymi í kringum atvinnumenn, eitthvað sem hefur alltaf vantað. Þetta er hvatning til ungra og efnilegra kylfinga að æfa sig ennþá meira því atvinnumannadraumurinn er ekki langt undan,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG og fjórfaldur Íslandsmeistari í höggleik.

Til baka

Eldri fréttir

Íslandsbanki selur Höfðatorg

19.06.2013
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur auglýst til sölu félagið HTO ehf. sem á og rekur eignirnar í Höfðatorgi við Borgartún 12-14 og Katrínartún 2 í...Nánar

Varasamur tölvupóstur vegna Netbanka

19.06.2013
Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst það sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka...Nánar

Nýr húsnæðissparnaður Íslandsbanka

13.06.2013
Íslandsbanki kynnir nýja sparnaðarleið til uppbyggingar á sparnaði til útborgunar á íbúðarhúsnæði.Nánar

Vel sóttur fundur um húsnæðismál

13.06.2013
Fjöldi manns sótti opinn fræðslufund Íslandbanka um húsnæðismál sem haldinn var þriðjudaginn 11. júní.Nánar

Fasteignamælaborð Íslandsbanka

12.06.2013
Fasteignamælaborðið á vef Íslandsbanka er öflug upplýsingaveita um þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Nánar