Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Áhrif óverðtryggðra og verðtryggðra vaxta á húsnæðislán og sparnað

Jón Finnbogason, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, hélt erindi um húsnæðislán á fundi Íslandsbanka og VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, um áhrif óverðtryggða og verðtryggðra vaxta á húsnæðislán og sparnað landsmanna.

Jón fór yfir þróun húsnæðisfjármögnunar og verðlags síðustu ára. Að auki fór hann yfir kosti og galla óverðtryggðra og verðtryggðra lána og þróun höfuðstóls og framtíðar greiðslubyrði miðað við framtíðar spá um þróun verðbólgu og vaxta. Þá var vaxtagreiðsluþakið, ný valkvæð þjónusta sem Íslandsbanki býður upp á, kynnt. Sú þjónusta tryggir lántakendum með óverðtryggð húsnæðislán skjól í umhverfi hækkandi vaxta. Þjónustan minnkar þannig óvissu um framtíðar greiðslubyrði viðskiptavina með óverðtryggða breytilega húsnæðislánavexti.

Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka hélt einnig erindi um ávöxtun fjármuna í verðbólgu. Hann sagði árangur í ávöxtun fjármuna á undanförnum árum hafa að miklu leiti ráðist af því hvernig sparifjáreigendur hafa stýrt sinni verðtryggingu. Ávöxtun verðtryggðra innlána, einkum verðtryggðra ríkisskuldabréfa, hafi verið mjög góð frá hruni þar sem aðstæður hafi hentað vel til slíkra fjárfestinga. Hinsvegar hafi raunávöxtun óverðtryggðra bankareikninga verið neikvæð frá því snemma á síðasta ári. Samkvæmt spá Greiningar Íslandsbanka um hærri vexti og minnkandi verðbólgu ætti raunávöxtun þó að batna á næstu misserum. Björn lagði áherslu á að sparifjáreigendur horfi ekki einungis til vaxtakjara þegar þeir velja ávöxtunarleið heldur taki fleiri þætti með í reikninginn s.s. tryggingar, eignadreifingu, binditíma og skattgreiðslna. 

Hægt er að horfa á upptöku af fundinum á vef VÍB.

Myndabanki

Til baka

Eldri fréttir

Íslandsbanki selur Höfðatorg

20.06.2013
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur auglýst til sölu félagið HTO ehf. sem á og rekur eignirnar í Höfðatorgi við Borgartún 12-14 og Katrínartún 2 í...Nánar

Varasamur tölvupóstur vegna Netbanka

20.06.2013
Íslandsbanki vill koma því á framfæri að bankinn sendir aldrei tölvupóst til viðskiptavina þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendanafn...Nánar

Nýr húsnæðissparnaður Íslandsbanka

13.06.2013
Íslandsbanki kynnir nýja sparnaðarleið til uppbyggingar á sparnaði til útborgunar á íbúðarhúsnæði.Nánar

Vel sóttur fundur um húsnæðismál

13.06.2013
Fjöldi manns sótti opinn fræðslufund Íslandbanka um húsnæðismál sem haldinn var þriðjudaginn 11. júní.Nánar

Fasteignamælaborð Íslandsbanka

12.06.2013
Fasteignamælaborðið á vef Íslandsbanka er öflug upplýsingaveita um þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Nánar