Óverðtryggt eða verðtryggt - opinn fundur
Íslandsbanki og VÍB bjóða til opins fundar í Norðurljósasal Hörpu fimmtudaginn 14. júní næstkomandi.
Kynnt verður ný hagvaxtarspá Greiningar Íslandsbanka auk þess sem sérfræðingar Íslandsbanka og VÍB fjalla um áhrif óverðtryggðra og verðtryggðra vaxta á húsnæðislán og sparnað landsmanna. Fundurinn hefst kl. 11.45 og lýkur kl. 13:00 og boðið verður uppá léttan hádegisverð.
Dagskrá:
Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka Vöxtur í viðjum hafta - ný þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka. Hvernig munu vextir, verðbólga og hagvöxtur þróast næstu árin? Hvað með gengi krónunnar, kaupmátt launa og húsnæðisverð? Hvernig þróast fjárhagsleg staða fyrirtækja og heimila?
Jón Finnbogason, aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka Húsnæðislán, hvað stendur til boða? - Á ég að taka verðtryggt eða óverðtryggt lán? Er hægt að minnka sveiflur í greiðslubyrði óverðtryggðra lána?
Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB Tekur því að spara óverðtryggt? Ávöxtun fjármuna í verðbólgu.
Pallborðsumræður verða að loknum fyrirlestrum.
Fundarstjóri verður Hildur Kristmundsdóttir, útibússtjóri hjá Íslandsbanka.
Í boði eru áhugaverðir fyrirlestar og léttur hádegisverður. Hægt er að skrá sig á fundinn fyrir kl. 10.00 fimmtudaginn 14. júní. Tekið er við skráningum meðan húsrúm leyfir.
Skrá mig á fundinn
Til baka