Árétting vegna dóms Hæstaréttar Íslands
07.06.2012
Vegna frétta um dóm Hæstaréttar sem kvað á um að húsnæðislán Íslandsbanka í erlendri mynt væri löglegt erlent lán, vill bankinn árétta að hann hefur nú endurreiknað öll húsnæðislán bankans í erlendum gjaldmiðlum sem og öll erlend lán sem tryggð voru með veði í íbúðarhúsnæði og þar með gengið lengra í endurreikningi erlendra húsnæðislána en lög frá Alþingi kveða á um. Að fenginni þessari niðurstöðu Hæstaréttar er ólíklegt að dómur Hæstaréttar frá 15. febrúar s.l. í málinu nr. 600/2011 eigi við um stærstan hluta húsnæðislána Íslandsbanka.
Íslandsbanki mun halda viðskiptavinum sínum vel upplýstum þegar búið er að yfirfara dóminn.Til baka
