Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Eimskip ræður Íslandsbanka til að vinna að undirbúningi skráningar félagsins á markað

11.05.2012
Eimskip hefur ráðið Íslandsbanka og Straum fjárfestingabanka til að vinna að undirbúningi að skráningu félagsins á NASDAQ OMX Iceland. Í tengslum við fyrirhugaða skráningu er gert ráð fyrir að fram fari almennt hlutafjárútboð þar sem fjárfestum og almenningi gefst kostur á að skrá sig fyrir hlutum í félaginu. Markmiðið með fyrirhuguðu útboði er að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins. Stefnt er að því að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland á síðasta ársfjórðungi 2012.

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélags Íslands:
“Með ráðningu Íslandsbanka og Straums fjárfestingabanka er tekið næsta skref í undirbúningi að skráningu Eimskips í kauphöll. Afkoman hefur verið góð og er í samræmi við áætlanir þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi á flutningamarkaði. Við teljum að skráning Eimskips á markað verði farsælt skref fyrir félagið og núverandi hluthafa þess og góður valkostur fyrir fjárfesta.”

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:
„Íslandsbanki hefur á undanförnum árum átt í góðu samstarfi við Eimskip. Það er okkur því sönn ánægja að taka þátt í uppbyggingu Eimskips með aðkomu að skráningu félagsins í kauphöll.“Til baka

Eldri fréttir

Uppfærsla á Meniga í dag

22.05.2013
Vegna uppfærslu á Meniga í dag 22. maí verður ekki hægt að nálgast gögn frá Meniga. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að...Nánar

VÍB aðalstyrktaraðili Dansa í Eldborg á Listahátíð

21.05.2013
VÍB - eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, verður aðalstyrktaraðili sýningarinnar Dansar í Eldborg: Igor Stravinsky í 100 ár sem sýnd verður 24. og...Nánar

Íslandsbanki veitir ferðaþjónustufyrirtækjum hvatningarverðlaun

21.05.2013
Íslandsbanki veitti um helgina þremur ferðaþjónustufyrirtækjum Hvatningarverðlaun Íslandsbanka. Nánar

Ísland í kjöraðstöðu til að taka þátt í uppbyggingu á Grænlandi

16.05.2013
VÍB, eignastýringaþjónusta Íslandsbanka, hélt í morgun fund um hvaða tækifæri fyrirsjáanlegar breytingar á norðurheimskautssvæðinu geta skapað fyrir...Nánar

Ráðstefna um þjónandi forystu

15.05.2013
Íslandsbanki er einn af aðalstyrktaraðilum ráðstefnu um þjónandi forystu sem fer fram 14. júní næstkomandi. Efni ráðstefnunnar er sérstaklega sniðið...Nánar