Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

04.05.2012

Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta í kauphöllinni í mars á þessu ári. Annars vegar var 7 ára útgáfan ISLA CBI 19, stækkuð um 635 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 2,90%, og hins vegar 12 ára útgáfan ISLA CBI 24 um 850 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,48%. Nokkur umframeftirspurn var eftir bréfunum en heildareftirspurn eftir þeim nam tæpum 2,2 milljörðum króna. Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í íslensku kauphöllinni þann 10. maí næstkomandi.

Alls hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf að upphæð 8.815.000.000 króna frá fyrstu útgáfu í desember 2011 þegar bankinn var fyrsti bankinn frá haustinu 2008 til að gefa út verðbréf í íslensku kauphöllinni.

Bréfin eru gefin út samkvæmt lögum nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfinu skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunni, auk þess sem sjálfstæður skoðunarmaður sinnir eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Jón Guðni Ómarsson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs Íslandsbanka:

“Íslandsbanki hefur nú gefið út þrjár útgáfur sértryggðra skuldabréfa og stækkað tvo flokka. Með þessu er verið að framfylgja þeirri stefnu bankans að gefa út slík bréf fyrir um 10 milljarða króna árlega. Viðtökurnar hafa verið mjög góðar enda var skortur á fjárfestingartækifærum hér á landi. Um leið og útgáfan styrkir fjármálamarkaðinn hér á landi eykst breidd í fjármögnun bankans sem gefur okkur um leið færi á að veita viðskiptavinum okkar góð kjör.”

Til baka

Eldri fréttir

Fyrsta árshlutauppgjör 2013 birt þann 30. maí

23.05.2013Kauphöll
Íslandsbanki mun birta fyrsta árshlutauppgjör 2013 fyrir opnun markaða fimmtudaginn 30. maí 2013. Nánar

VÍB aðalstyrktaraðili Dansa í Eldborg á Listahátíð

21.05.2013
VÍB - eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, verður aðalstyrktaraðili sýningarinnar Dansar í Eldborg: Igor Stravinsky í 100 ár sem sýnd verður 24. og...Nánar

Íslandsbanki veitir ferðaþjónustufyrirtækjum hvatningarverðlaun

21.05.2013
Íslandsbanki veitti um helgina þremur ferðaþjónustufyrirtækjum Hvatningarverðlaun Íslandsbanka. Nánar

Ísland í kjöraðstöðu til að taka þátt í uppbyggingu á Grænlandi

16.05.2013
VÍB, eignastýringaþjónusta Íslandsbanka, hélt í morgun fund um hvaða tækifæri fyrirsjáanlegar breytingar á norðurheimskautssvæðinu geta skapað fyrir...Nánar

Ráðstefna um þjónandi forystu

15.05.2013
Íslandsbanki er einn af aðalstyrktaraðilum ráðstefnu um þjónandi forystu sem fer fram 14. júní næstkomandi. Efni ráðstefnunnar er sérstaklega sniðið...Nánar