Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Íslandsbanki: Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

04.05.2012

Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland í mars 2012. Annars vegar var 7 ára útgáfan ISLA CBI 19, stækkuð um ISK 635.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,90%, og hins vegar var 12 ára útgáfan ISLA CBI 24 stækkuð um ISK 850.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,48%.

Heildarstærð ISLA CBI 19 útgáfunnar er nú orðin ISK 2.465.000.000 og heildarstærð ISLA CBI 24 útgáfunnar orðin ISK 2.350.000.000. Alls hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf að upphæð ISK 8.815.000.000 frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu var ISK 2.185.000.000, en 68% tilboða var tekið að upphæð ISK 1.485.000.000.

Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 10. maí næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka. Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfinu skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunni, sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Til baka

Eldri fréttir

Fyrsta árshlutauppgjör 2013 birt þann 30. maí

23.05.2013Kauphöll
Íslandsbanki mun birta fyrsta árshlutauppgjör 2013 fyrir opnun markaða fimmtudaginn 30. maí 2013. Nánar

VÍB aðalstyrktaraðili Dansa í Eldborg á Listahátíð

21.05.2013
VÍB - eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, verður aðalstyrktaraðili sýningarinnar Dansar í Eldborg: Igor Stravinsky í 100 ár sem sýnd verður 24. og...Nánar

Íslandsbanki veitir ferðaþjónustufyrirtækjum hvatningarverðlaun

21.05.2013
Íslandsbanki veitti um helgina þremur ferðaþjónustufyrirtækjum Hvatningarverðlaun Íslandsbanka. Nánar

Ísland í kjöraðstöðu til að taka þátt í uppbyggingu á Grænlandi

16.05.2013
VÍB, eignastýringaþjónusta Íslandsbanka, hélt í morgun fund um hvaða tækifæri fyrirsjáanlegar breytingar á norðurheimskautssvæðinu geta skapað fyrir...Nánar

Ráðstefna um þjónandi forystu

15.05.2013
Íslandsbanki er einn af aðalstyrktaraðilum ráðstefnu um þjónandi forystu sem fer fram 14. júní næstkomandi. Efni ráðstefnunnar er sérstaklega sniðið...Nánar