Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

VÍB fundur: Einhliða upptaka - raunhæf lausn á gjaldmiðlakreppunni?

Fundur VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, fer nú fram en hægt er að horfa á beina útsendingu af fundinum á vib.is. Á fundinum mun Manuel Hinds, hagfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra El Salvador, fjalla um sjálfstæða gjaldmiðla og hvort einhliða upptaka gjaldmiðils geti verið lausnin á gjaldmiðlakreppu Íslendinga. Yfirskrift fundarins er Einhliða upptaka – raunhæf lausn á gjaldmiðlakreppunni? Hinds var helsti ráðgjafi forseta El Salvador þegar landið tók dollar upp einhliða um síðustu aldamót. Undanfarin ár hefur Hinds starfað sem ráðgjafi samfara ritstörfum með áherslu á fjármálamarkaði. Hinds hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir ritstörf sín, m.a. Hayek bókmenntaverðlaunin árið 2010 fyrir Money, Markets and Sovereignty sem hann skrifaði með Benn Steil. Hinds var síðast hér á landi í september árið 2007 og mælti þá með einhliða upptöku til að koma í veg fyrir yfirvofandi gjaldmiðlakreppu. 

Að loknu erindi Hinds munu fara fram umræður í pallborði en þar eru Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir og Ingólfur Heiðar Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka. Fundarstjóri er Hrafn Árnason, forstöðumaður Stýringar eigna hjá VÍB. 

Bein lýsing frá fundinum er einnig á Twitter síðu VÍB, auðkenni er #vibfundur

Stefán Sigurðsson, framkvæmdastjóri eignastýringar Íslandsbanka:

„Til þess að reyna að fá betri mynd af því hvort einhliða upptaka sé raunhæf og þá hvernig slík leið gæti verið framkvæmd miðað við stöðuna hér á landi er áhugavert að byggja á reynslu þeirra sem hafa framkvæmt einhliða upptöku. Með það að markmiði hefur VÍB boðið Manuel Hinds hagfræðingi og fyrrum fjármálaráðherra El Salvador að lýsa reynslu El Salvador af einhliða upptöku. Fundinum er ætlað að styðja við opna og faglega umræðu um peningastefnu og gjaldmiðlamál með það að markmiði koma Íslandi út úr gjaldmiðlakreppunni sem fyrst.“

Myndabanki

Til baka

Eldri fréttir

Íslandsbanki selur Höfðatorg

20.06.2013
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur auglýst til sölu félagið HTO ehf. sem á og rekur eignirnar í Höfðatorgi við Borgartún 12-14 og Katrínartún 2 í...Nánar

Varasamur tölvupóstur vegna Netbanka

20.06.2013
Íslandsbanki vill koma því á framfæri að bankinn sendir aldrei tölvupóst til viðskiptavina þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendanafn...Nánar

Nýr húsnæðissparnaður Íslandsbanka

13.06.2013
Íslandsbanki kynnir nýja sparnaðarleið til uppbyggingar á sparnaði til útborgunar á íbúðarhúsnæði.Nánar

Vel sóttur fundur um húsnæðismál

13.06.2013
Fjöldi manns sótti opinn fræðslufund Íslandbanka um húsnæðismál sem haldinn var þriðjudaginn 11. júní.Nánar

Fasteignamælaborð Íslandsbanka

12.06.2013
Fasteignamælaborðið á vef Íslandsbanka er öflug upplýsingaveita um þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Nánar