Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Íslandsbanki gefur út áhættuskýrslu

30.03.2012

Íslandsbanki hefur gefið út áhættuskýrslu í annað sinn. Í henni er að finna ítarefni um áhættustýringu og áhættumat og er henni ætlað að auka skilning og gagnsæi á áhættutöku í bankanum og eiginfjárstöðu hans. Í skýrslunni eru ítarlegar upplýsingar um áhættumynstur bankans, s.s. áhættu sem felst í breytingum á virði eigna, samsetningu skulda og aðra áhættu í daglegum rekstri. Að auki eru ítarlegri upplýsingar um lánasafn bankans en birtast í ársskýrslunni, t.a.m. þróun lánasafnsins, lánategundir, tryggingar og áhættuflokka. Greinargott yfirlit er gefið um fjárhagslega endurskipulagningu viðskiptavina bankans, þau úrræði sem þeim hafa staðið til boða og með hvaða hætti afskriftir og eftirgjafir hafa orðið til. Þá er einnig fjallað um lausafjárstýringu og fjármögnun bankans.

Íslandsbanki er eini bankinn hérlendis sem gefur út áhættuskýrslu en hún er jafnframt liður í að fullnægja þriðju stoð Basel II reglna um fjármálastarfsemi. Skýrslan var gefin út í fyrsta sinn á síðasta ári og var þá einungis aðgengileg á ensku. Hún er nú einnig gefin út á íslensku.

Skýrsluna má nálgast á vef bankans, islandsbanki.is/ahaettuskyrsla.

Sverrir Örn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar og lánaeftirlits:

„Útgáfa áhættuskýrslunnar endurspeglar það gagnsæi sem Íslandsbanki leggur áherslu á í störfum sínum. Skýrslan veitir markaðsaðilum upplýsingar sem varpa ljósi á áhættuþætti í starfsemi okkar og með hvaða hætti tekist er á við óvissuþætti í umhverfi okkar. Eins og sjá má í skýrslunni er efnahagur Íslandsbanka traustur þrátt fyrir óstöðugleika í íslensku efnahagslífi.“

Til baka

Eldri fréttir

Nýr húsnæðissparnaður Íslandsbanka

13.06.2013
Íslandsbanki kynnir nýja sparnaðarleið til uppbyggingar á sparnaði til útborgunar á íbúðarhúsnæði.Nánar

Vel sóttur fundur um húsnæðismál

13.06.2013
Fjöldi manns sótti opinn fræðslufund Íslandbanka um húsnæðismál sem haldinn var þriðjudaginn 11. júní.Nánar

Fasteignamælaborð Íslandsbanka

12.06.2013
Fasteignamælaborðið á vef Íslandsbanka er öflug upplýsingaveita um þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Nánar

Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

06.06.2013Kauphöll
Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland í mars...Nánar

Ergo stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um eignaleigustarfsemi

06.06.2013
Ergo, fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka, er aðili að IFLA, International Finance and Leasing Association, sem eru alþjóðleg samtök fjármálafyrirtækja...Nánar