Beint á efnisyfirlit síðunnar
Fréttir

Bluebird Cargo ehf. í opið söluferli

22.02.2012

PwC hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 100% hlut í Bluebird Cargo ehf., sem er í eigu SPW ehf., dótturfélags Miðengis ehf. Bluebird Cargo er íslenskt flugfélag sem sérhæfir sig í flugfrakt og blautleigu flugvéla til flutningamiðlara um allan heim, þó einkum í Evrópu.

Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, hafa þekkingu og reynslu til að takast á við jafnsérhæfðan rekstur og alþjóðleg starfsemi Bluebird Cargo ehf. felur í sér og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 500 m.kr.

Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við PwC í síma 550 5300 eða með því að senda tölvupóst á netfangið halldor.thorkelsson@is.pwc.com eða julius.fjeldsted@is.pwc.com. Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar afhentar frekari upplýsingar um tímasetningar og skilmála söluferlisins auk upplýsinga um fjárhag og starfsemi félagsins.

Seljandi áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum, breyta söluferlinu og/ eða stöðva það eftir atvikum. Öllum þátttakendum verður tilkynnt um slíka ákvörðun og rökstuðning fyrir henni.

Nánari upplýsingar veita:

Til baka

Eldri fréttir

Íslandsbanki innleiðir samkeppnisstefnu

13.05.2012
Starfsemi Íslandsbanka er víðtæk og ákvarðanataka um viðskipti er dreifð. Til að tryggja að farið sé eftir samkeppnisreglum í hvívetna hefur...Nánar

Eimskip ræður Íslandsbanka til að vinna að undirbúningi skráningar félagsins á markað

11.05.2012
Eimskip hefur ráðið Íslandsbanka og Straum fjárfestingabanka til að vinna að undirbúningi að skráningu félagsins á NASDAQ OMX Iceland.Nánar

Tilkynning frá samstarfshópi um úrvinnslu gengistryggðra lána

10.05.2012
Samstarfshópur á vegum fjármálafyrirtækja og fulltrúa lánþega um úrvinnslu gengistryggðra lána hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að...Nánar

4.000 viðskiptavinir hafa greitt niður yfirdráttinn og nýtt sér vaxtalækkun

04.05.2012
Íslandsbanki hefur ákveðið að framlengja tilboði um vaxtaafslátt gegn niðurgreiðslu yfirdráttar. Bankinn hefur boðið viðskiptavinum sínum upp á þennan...Nánar

Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

04.05.2012
Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta í kauphöllinni í mars á þessu...Nánar