Yfirlýsing vegna dóms Hæstaréttar
15.02.2012
Vegna dóms Hæstaréttar Íslands um vaxtaútreikning á ólögmætum erlendum lánum vill Íslandsbanki taka eftirfarandi fram:
Ljóst er að töluverð óvissa ríkir um túlkun dómsins og leitar Íslandsbanki nú álits sérfræðinga á dómnum. Íslandsbanki mun halda viðskiptavinum sínum vel upplýstum þegar sú niðurstaða liggur fyrir.
Rétt er að árétta að eiginfjárstaða bankans er sterk og sé miðað við þá túlkun dómsins sem talin væri bankanum mest í óhag þá verður eiginfjárhlutfall áfram yfir þeim lágmörkum sem Fjármálaeftirlitið setur.
Til baka