Hagræðingaraðgerðum vegna sameiningar Íslandsbanka og Byrs lokið
03.02.2012
Íslandsbanki hefur ráðist í óhjákvæmilegar hagræðingaraðgerðir í kjölfar sameiningar Íslandsbanka og Byrs. Sameining útibúa bankanna hófst í janúar og mun því ferli ljúka í febrúar en sameining höfuðstöðva fór fram í desember. Hagræðingaraðgerðum er nú lokið í útibúum bankans; þ.e. í útibúum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjanesbæ og á Akureyri.
Bankinn mun kappkosta að upplýsa viðskiptavini vel um næstu skref auk þess sem frekari upplýsingar um sameiningu útibúanna eru heimasíðu Íslandsbanka. Ekki er gert ráð fyrir frekari uppsögnum vegna sameiningarinnar.
Til baka