Íslandsbanki sameinast Byr í Hraunbæ
30.01.2012
Útibú Byrs í Hraunbæ opnar í dag undir merkjum Íslandsbanka. Um helgina var unnið að sameiningu kerfa útibúsins við Íslandsbanka auk þess útliti þess var breytt og teknir upp litir og merki íslandsbanka. Útibússtjóri Íslandsbanka í Hraunbæ er Ylfa Proppé Einarsdóttir.
Í tilefni dagsins verður opið í útibúinu til kl. 18:00 og verður mikið um að vera. Boðið verður uppá lifandi tónlist, kaffiveitingar, glaðning fyrir börnin og þá munu Söngvaborg og Georg koma og skemmta gestum og gangandi kl. 14:30.
Til baka