Beint á efnisyfirlit síðunnar
Fréttir

Íslandsbanki og Byr sameinast í Kópavogi í dag

23.01.2012

Útibú Byrs á Digranesvegi í Kópavogi opnaði í dag undir merkjum Íslandsbanka. Á sama tíma lokaði útibú Íslandsbanka í Hamraborg, en það hefur verið rekin sem afgreiðsla frá útibúi bankans í Þarabakka síðan árið 2003.

Útibúið að Digranesvegi er í nýlegu og glæsilegu húsnæði og var helgin nýtt til þess að breyta útliti þess og setja upp merki, liti og kynningarefni frá Íslandsbanka. Útibúið opnaði svo í morgun undir merkjum Íslandsbanka og verður opið til kl. 18 í dag í tilefni dagsins. Það verður mikið um að vera í dag, boðið verður uppá kaffi og veitingar, tónlilstarmenn koma og leika fyrir gesti og Georg kemur með glaðning fyrir börnin. Útibússtjóri Íslandsbanka á Digranesvegi er Guðrún Katrín J. Gísladóttir.

Viðskiptavinir sem hafa verið í viðskiptum við útibúið í Hamraborg tilheyra nú útibúi bankans í Þarabakka, en geta að sjálfsögðu nýtt sér útibú Íslandsbanka á Digranesvegi ef það hentar þeim betur.

Til baka

Eldri fréttir

Íslandsbanki innleiðir samkeppnisstefnu

13.05.2012
Starfsemi Íslandsbanka er víðtæk og ákvarðanataka um viðskipti er dreifð. Til að tryggja að farið sé eftir samkeppnisreglum í hvívetna hefur...Nánar

Eimskip ræður Íslandsbanka til að vinna að undirbúningi skráningar félagsins á markað

11.05.2012
Eimskip hefur ráðið Íslandsbanka og Straum fjárfestingabanka til að vinna að undirbúningi að skráningu félagsins á NASDAQ OMX Iceland.Nánar

Tilkynning frá samstarfshópi um úrvinnslu gengistryggðra lána

10.05.2012
Samstarfshópur á vegum fjármálafyrirtækja og fulltrúa lánþega um úrvinnslu gengistryggðra lána hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að...Nánar

4.000 viðskiptavinir hafa greitt niður yfirdráttinn og nýtt sér vaxtalækkun

04.05.2012
Íslandsbanki hefur ákveðið að framlengja tilboði um vaxtaafslátt gegn niðurgreiðslu yfirdráttar. Bankinn hefur boðið viðskiptavinum sínum upp á þennan...Nánar

Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

04.05.2012
Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta í kauphöllinni í mars á þessu...Nánar