Beint á efnisyfirlit síðunnar
Fréttir

Glacier Securities leiðir ráðgjöf í viðskiptum American Seafood

19.01.2012

Glacier Securities, dótturfélag Íslandsbanka í New York, leiddi ráðgjöf í kaupum American Seafood Group á Good Harbor Fillet LLC, framleiðanda á frosnum sjávarafurðum. American Seafood Group er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í nýtingu sjávarafurða, vinnslu á sjó og virðisaukandi framleiðslu á hágæða sjávarafurðum og eitt af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna í þessum geira. Good Harbor Fillet mun verða sameinað dótturfyrirtæki American Seafood, American Pride Seafood sem sérhæfir sig í vinnslu sjávarafurða í landi.

Glacier Securities veitir ráðgjöf við kaup og sölu á fyrirtækjum á sviði jarðvarma og sjávarútvegs í Bandaríkjunum og byggir á þeirri sérþekkingu sem Íslandsbanki, og forverar hans, hafa þróað á undanförnum áratugum á sviði jarðvarma og sjávarútvegs. Félagið fékk starfsleyfi frá bandarískum yfirvöldum í mars á síðasta ári. Starfsleyfið hefur það í för með sér að það má starfrækja fjármálafyrirtæki í Bandaríkjunum á takmörkuðu sviði en starfsemi félagsins er undir ströngu eftirliti bandarískra eftirlitsaðila. Undanfarna mánuði hefur Glacier Securities einnig unnið með íslenskum fyrirtækjum sem starfa á þessum vettvangi í viðleitni þeirra til að afla sér verkefna á Bandaríkjamarkaði.

Ignacio J. Kleiman, forstjóri Glacier Securities

„Viðskiptin eru einn liður í að sameina hinn sundurleita en alþjóðlega sjávarútvegs geira sem gengur nú í gegnum mikið breytingartímabil sem einkennist af sameiningum félaga sem starfa innan hans. Glacier Securities hefur notið þeirra forréttinda að starfa með leiðandi aðilum á markaði, líkt og American Seafood, í átt að því markmiði að sameina geirann til að gera hann enn arðbærari."

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka

„Íslandsbanki hefur fulla trú á að hin íslenska sérþekking á sjávarútvegi og jarðvarma megi nýta til tekjusköpunar í auknum mæli. Ráðgjöf Glacier Securities í viðskiptum eins stærsta fyrirtækis Bandaríkjanna í sjávarútvegsgeiranum er góður vitnisburður um hversu eftirsótt sérþekking á þessum málum er."

Til baka

Eldri fréttir

Íslandsbanki innleiðir samkeppnisstefnu

13.05.2012
Starfsemi Íslandsbanka er víðtæk og ákvarðanataka um viðskipti er dreifð. Til að tryggja að farið sé eftir samkeppnisreglum í hvívetna hefur...Nánar

Eimskip ræður Íslandsbanka til að vinna að undirbúningi skráningar félagsins á markað

11.05.2012
Eimskip hefur ráðið Íslandsbanka og Straum fjárfestingabanka til að vinna að undirbúningi að skráningu félagsins á NASDAQ OMX Iceland.Nánar

Tilkynning frá samstarfshópi um úrvinnslu gengistryggðra lána

10.05.2012
Samstarfshópur á vegum fjármálafyrirtækja og fulltrúa lánþega um úrvinnslu gengistryggðra lána hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að...Nánar

4.000 viðskiptavinir hafa greitt niður yfirdráttinn og nýtt sér vaxtalækkun

04.05.2012
Íslandsbanki hefur ákveðið að framlengja tilboði um vaxtaafslátt gegn niðurgreiðslu yfirdráttar. Bankinn hefur boðið viðskiptavinum sínum upp á þennan...Nánar

Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

04.05.2012
Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta í kauphöllinni í mars á þessu...Nánar