Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Forseti Íslands heimsótti höfuðstöðvar Glitnis

24.10.2008

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands heimsótti höfuðstöðvar Glitnis síðastliðinn miðvikudag og sat fjölsóttan fund starfsmanna. Fundurinn var liður í fundaröð forsetans með ólíkum þjóðfélagshópum og starfsmönnum fyrirtækja til að ræða þá stöðu sem nú er uppi í íslensku samfélagi.

Í framsögu sinni kom Hr. Ólafur Ragnar meðal annars inn á þær áskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir í efnahagsmálum. Hann hvatti viðstadda til að taka af fullum krafti þátt í þeirri uppbyggingar-starfsemi sem framundan er og er nauðsynleg til að koma Íslandi sem fyrst út úr þeim aðstæðum sem hafa skapast í kjölfar þrenginganna sem nú ríða yfir íslenskt fjármálakerfi og efnahagslíf.

Aðspurður um þann ímyndarskaða sem Ísland hafi mögulega orðið fyrir vegna þessa ástands sagði forsetinn að Ísland hefði á síðustu árum og áratugum byggt upp ómetanlega þekkingu á sviði sjávarútvegs og orkurannsókna sem yrði áfram dýrmæt umheiminum þrátt fyrir núverandi ástand á fjármálamörkuðum. Hann sagði þennan mannauð vera mjög mikilvægan fyrir umheiminn í ljósi síháværari umræðu um loftslagsbreytingar, vandamál sem væri miklu mun alvarlegra fyrir mannkynið en tímabundin lausafjárkreppa.

Við spurningu um hversu raunhæft væri fyrir Íslendinga að tala um sjálfstæði í ljósi þess að þjóðin væri í raun ekki fjárhagslega sjálfstæð sagðist Hr. Ólafur Ragnar telja að þær auðlindir og undirstöður sem Ísland  búi yfir og byggi á séu mun fjölbreyttari nú en þegar landið var að öðlast sjálfstæði um miðja síðustu öld. Þá hefði þjóðin verið háðari mun einhæfari þáttum t.d. hvað varðar atvinnu og verðmætasköpun. Það væri því að hans viti með miklum ólíkindum ef Ísland næði ekki að halda sjálfstæði sínu eftir að leyst hefur verið úr núverandi vanda sem hann lagði áherslu á að væri tímabundinn.

Hr. Ólafur Ragnar sagði að það hefði komið sér á óvart á þeim fundum sem hann hefði setið með fólki úr öllum stéttum og á öllum aldri hversu mikill jákvæður kraftur streymdi frá því fólki sem þar sat. Hvarvetna væri að finna fólk sem hlakkaði til að taka þátt í uppbyggingunni og eiga þátt í því að móta nýtt samfélag og að einhverju leyti ný gildi fyrir íslenska þjóð. Það virtist þannig algengara að fólk liti á þetta sem tækifæri fremur en óyfirstíganýlega hindrun. Þetta væri mjög jákvætt og ánægjulegt að heyra.

Ennfremur sagði forseti að hann vildi nota tækifærið til að þakka starfsmönnum bankans fyrir það starf sem þeir hafa á undanförnum árum unnið og hafa fært þjóðinni og ekki síst ungu fólki mikil tækifæri. Hann sagði brýnt að þjóðin bæri gæfu til að notfæra sér þá þekkingu sem byggst hefði upp innan bankageirans við að greiða úr þeim vandamálum sem við stæðum nú frammi fyrir.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis:

„Það var mikil ánægja að fá Hr. Ólaf Ragnar í heimsókn til Glitnis. Það var áhugavert að heyra hans innlegg og sýn á ástandið og þær áskoranir sem við hjá Nýja Glitni, sem og þjóðin öll, stöndum frammi fyrir. Forseti var bjartsýnn á framtíð Íslands og það erum við hjá Glitni líka og ég tel að forsetinnar hafi blásið okkur öllum byr í brjóst að takast á við þessi krefjandi verkefni sem framundan eru."

Til baka

Eldri fréttir

Nýr húsnæðissparnaður Íslandsbanka

13.06.2013
Íslandsbanki kynnir nýja sparnaðarleið til uppbyggingar á sparnaði til útborgunar á íbúðarhúsnæði.Nánar

Vel sóttur fundur um húsnæðismál

13.06.2013
Fjöldi manns sótti opinn fræðslufund Íslandbanka um húsnæðismál sem haldinn var þriðjudaginn 11. júní.Nánar

Fasteignamælaborð Íslandsbanka

12.06.2013
Fasteignamælaborðið á vef Íslandsbanka er öflug upplýsingaveita um þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Nánar

Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

06.06.2013Kauphöll
Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland í mars...Nánar

Ergo stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um eignaleigustarfsemi

06.06.2013
Ergo, fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka, er aðili að IFLA, International Finance and Leasing Association, sem eru alþjóðleg samtök fjármálafyrirtækja...Nánar