Um bankann
Hlutverk
Íslandsbanki býður alhliða bankaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki með hagsmuni viðskiptavina og samfélagsins að leiðarljósi.
Utan Íslands byggir Íslandsbanki fyrst og fremst á þeirri sérþekkingu og viðskiptasamböndum sem bankinn býr yfir í sjávarútvegi og orkugeiranum.
Ýmsar staðreyndir

- Íslandsbanki starfrækir útibú víðsvegar um landið. Sjá nánari upplýsingar um útibú Íslandsbanka.
- Höfuðstöðvar Íslandsbanka eru á Kirkjusandi, 155 Reykjavík
- Meðalfjöldi starfsmanna í fullu starfi árið 2011 var 1.003
- Meðal starfsreynsla hjá bankanum er 10,6 ár í lok árs 2011
- Meðalaldur starfsmanna árið 2011: 42 ár
Viðskiptaeiningar
Viðskiptabankasvið
- Sér um bankaþjónustu fyrir einstaklinga, heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki
- Útibú bankans og Íslandsbanki fjármögnun falla undir Viðskiptabankasvið
- Eitt hagkvæmasta útibúanet á Íslandi
- Heildareignir viðskiptabankasviðs í lok árs 2010 voru 300,6 milljarðar króna
- Framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs er Una Steinsdóttir
Fyrirtækjasvið
- Sérhæfð fjármálaþjónusta fyrir stærri fyrirtæki
- Fyrirtækjasvið er með sterka stöðu í útlánum og ráðgjöf til stærri fyrirtækja á Íslandi
- Áhersla lögð á frumkvæði í því að vinna að lausnum með viðskiptavinum
- Alþjóðleg tenging í gegnum sérþekkingu á orkuiðnaði og sjávarútvegi á grundvelli þekkingar og reynslu í þessum atvinnugreinum.
- Framkvæmdarstjóri Fyrirtækjasviðs er Vilhelm Már Þorsteinsson
Eignastýring Íslandsbanka
- Alhliða eignastýringarþjónusta, verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf fyrir einstaklinga og fagfjárfesta á Íslandi
- VÍB er stærst í einkabankaþjónustu á Íslandi
- Íslandssjóðir - dótturfyrirtæki Íslandsbanka er leiðandi í rekstri skuldabréfasjóða með yfir 100 milljarða í stýringu.
- Yfir 20.000 virkir viðskiptavinir eru hjá VÍB
- Mikil áhersla er á þróun nýrrar þjónustu hjá VÍB
- VÍB er leiðandi í fræðslu til sparifjáreigenda og fjárfesta
- Framkvæmdastjóri Eignastýringar Íslandsbanka er Stefán Sigurðsson
Markaðir
- Sviðið sinnir verðbréfa- og gjaldeyrismiðlun og fyrirtækjaráðgjöf fyrir fagfjárfesta og fyrirtæki
- Greining Íslandsbanka tilheyrir Mörkuðum en hún gefur t.d. út þjóðhagsspá og Morgunkorn Íslandsbanka með reglubundnum hætti
- Markaðir Íslandsbanka eru einn af leiðandi aðilum í miðlun með skuldabréf á Íslandi og á sviði gjaldeyrisviðskipta
- Framkvæmdarstjóri Markaða er Tryggvi Björn Davíðsson
