Sértryggð skuldabréf skráð í Kauphöll
Íslandsbanki var fyrsti bankinn til að gefa út verðbréf í íslensku kauphöllinni, NASDAQ OMX Iceland, eftir hrun. Þar með var er stigið mikilvægt skref í að auka breidd í fjármögnun bankans, en innlán hafa verið undirstaða fjármögnunar hans frá stofnun í október 2008.
Íslandsbanki hefur sett upp 100 milljarða króna fjármögnunarramma fyrir sértryggð skuldabréf og stefnir á að gefa út slík bréf fyrir 10 milljarða króna árlega.
Alls hefur bankinn gefið úr þrjár útgáfur sértryggðra skuldabréfa, 5 ára flokkinn ISLA CBI 16, 7 ára flokkinn ISLA CBI 19 og 12 ára flokkinn ISLA CBI 24. Mikil eftirspurn var eftir bréfunum sem voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta.
Sértryggð skuldabréf eru góður fjármögnunarkostur í núverandi árferði. Bréfin eru gefin út samkvæmt lögum nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfinu skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunni, auk þess sem sjálfstæður skoðunarmaður sinnir eftirliti.
Fylgigögn með útgáfu
Skilmálar útgáfanna
Skýrslur um tryggingasafnið
Allar fjárhagslegar upplýsingar Íslandsbanka má nálgast undir Afkoma og tilkynningar.
