Hvað ef?
Flottir „Hvað ef" bolir
Íslandsbanki er aðalbakhjarl „Hvað ef" - skemmtifræðslu og því geta XY félagar komið í næsta útibú Íslandsbanka og fengið flottan „Hvað ef" bol með því að leggja 1.000 kr. inn á XY-reikning. Þeir sem ekki eru í XY geta stofnað reikning í næsta útibúi - lagt inn 1.000 kr. og fengið bol.
Hvað er „Hvað ef"?
„Hvað Ef?" er uppistand/leikrit fyrir unglinga, foreldra og kennara um þau alvarlegu málefni og freistingar sem ungt fólk stendur frammi fyrir í nútíma samfélagi. „Hvað Ef?" fjallar um viðkvæm mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál á umbúðalausan og skemmtilegan hátt.
Verkið hefur hlotið einmuna lof unglinga, foreldra, kennara og þeirra sem hafa staðið í forvörnum og fræðslu. Með húmorinn og einlægnina að vopni einsetur leikhópurinn sér að opna umræðuna um raunveruleika ungmenna á Íslandi.
Flytjendur verksins eru: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Ólöf Jara Skagfjörð og Ævar Þór Benediktsson. Leikstjórn: Gunnar Sigurðsson.
