
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 49% hlut í Skeljungi hf., S fasteignum ehf., Ö-fasteignum ehf. og Birgðastöðinni Miðsandi ehf., sem eru í dag í eigu Miðengis ehf., dótturfélags Íslandsbanka hf. Fyrirspurnir vegna söluferlisins berist til Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka hf. á netfangið skeljungur2009@islandsbanki.is.
Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, einstaklingum sem hafa verulegan fjárhagslegan styrk og viðeigandi þekkingu, auk fyrirtækja sem höfðu eiginfjárstöðu sem var hærri en sem nemur 100 m. kr. í árslok 2008. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.
Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að leggja fram umbeðnar upplýsingar og nauðsynleg gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Framangreindu skal skilað til Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka í samræmi við neðangreindar upplýsingar um skil gagna og tilboða. Móttaka trúnaðaryfirlýsinga og viðeigandi gagna hefst miðvikudaginn 25. nóvember og er síðasti frestur til að skila inn framangreindu vegna þátttöku í söluferlinu 1. desember kl. 16:00.
Uppfylli fjárfestar ofangreind skilyrði fá þeir kynningargögn afhent á tímabilinu 26. nóvember til og með 2. desember. Kynningargögnin verða afhent með rafrænum hætti á netfang sem fjárfestar tilgreina í trúnaðaryfirlýsingu. Gert er ráð fyrir að óskuldbindandi tilboðum sé skilað til Íslandsbanka, mánudaginn 7. desember 2009, fyrir kl. 16:00, í lokuðu umslagi merkt í samræmi við neðangreindar upplýsingar um skil gagna og tilboða.
Þeim fjárfestum, sem leggja fram hæstu tilboðin og leggja fram trúverðugar upplýsingar um fjármögnun kaupanna, verður boðið til áframhaldandi þátttöku í söluferlinu. Þá fá fjárfestar aðgang að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins, en þeim ber svo að skila inn skuldbindandi tilboði með fyrirvara um áreiðanleikakönnun í síðasta lagi mánudaginn 21. desember 2009, fyrir kl.16:00, í lokuðu umslagi merkt í samræmi við neðangreindar upplýsingar um skil gagna og tilboða. Skuldbindandi tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila. Í kjölfarið taka við viðræður við hæstbjóðendur.
Eftirfarandi er yfirlit yfir þau gögn sem áhugasamir fjárfestar þurfa að skila inn til þess að öðlast rétt til þátttöku í söluferlinu:
I. Allir áhugasamir fjárfestar þurfa að skila inn trúnaðaryfirlýsingu. Form trúnaðaryfirlýsingar má nálgast hér.
II. Lögaðilar og einstaklingar þurfa að skila inn þeim upplýsingum sem tilgreindar eru í eftirfarandi skjölum:
III. Þátttaka í útboðinu fæst gegn einu af eftirfarandi skilyrðum og þurfa áhugasamir fjárfestar að skila inn gögnum því til staðfestingar að þeir uppfylli skilyrði a.m.k. eins af neðangreindum flokkum:
Öllum gögnum vegna söluferlisins skal skilað til Íslandsbanka, innan tilgreindra tímamarka, í lokuðu umslagi, merkt:
Íslandsbanki hf.
Kirkjusandi
105 Reykjavík
Fyrirtækjaráðgjöf/Skeljungur2009
Athygli er vakin á því að ekki er tekið við tilboðum á rafrænu formi.