Beint á efnisyfirlit síðunnar
Úrræði

Úrræði fyrir fyrirtæki

  • Í desember árið 2008 birti Íslandsbanki verklagsreglur á vef sínum varðandi úrræði til lausna á greiðsluvanda fyrirtækja í viðskiptum við bankann. Verklagsreglur þessar hafa nú verið uppfærðar með það að markmiði að bankinn geti betur mætt þörfum fyrirtækja í greiðsluerfiðleikum.
  • Reglur þessar koma í stað áður birtra verklagsreglna og hafa að geyma upplýsingar um þau úrræði sem fyrirtækjum í greiðsluerfiðleikum standa til boða. Slík úrræði geta falið í sér eftirgjöf skulda að hluta sem og aðrar ívilnanir.
  • Bankinn byggir allar ákvarðanir sínar um úrlausnir á greiðsluvanda fyrirtækja á vandlegri greiningu á fjárhagsstöðu viðskiptavinar, viðskiptasögu, formlegu áhættumati og ítarlegri skoðun á greiðsluhæfi. Þá taka ákvarðanir einnig mið af undirliggjandi áhættu og þeim tryggingum og áhættuvörnum sem eru til staðar í hverju tilviki.

Úrræði Íslandsbanka - Yfirlitsmynd

ÚrræðiSkilgreiningFyrir hverja?Hver eru fyrstu skref fyrirtækisins?
SkilmálabreytingLenging lánstíma, tímabundin lækkun á greiðslubyrði lána, tímabundin frestun á greiðslum lána.Hentar fyrirtækjum í tímabundnum greiðsluerfiðleikum.Hafa samband við ráðgjafa eða sinn tengilið í Íslandsbanka.
Höfuðstólslækkun erlendra lánaHöfuðstóll erlendra lána færður yfir í íslenskar krónur á lokagengi Seðlabanka Íslands þann 29. september 2008. Bankinn áskilur sér rétt til breytinga á skiptigengi og viðmiðunardegi eftir 30. júní 2010.Höfuðstólslækkun gagnast fyrirtækjum með erlend lán sem hafa tekjur í íslenskum krónum. Hún mun í fæstum tilfellum lækka greiðslubyrði nema samhliða skilmálabreytingu.Hafa samband við viðskiptastjóra eða sinn tengilið í Íslandsbanka.
SkuldaaðlögunHeildarlán félagsins löguð að greiðslugetu samhliða endurskipulagningu rekstrar. Möguleg eftirgjöf skulda. Fullvíst þarf að vera að ekki sé mögulegt að laga greiðslubyrði að greiðslugetu með endurfjármögnun, skilmálabreytingum eða höfuðstólslækkun.Hentar fyrirtækjum í varanlegum greiðsluerfiðleikum þar sem skilmálabreytingar og/eða höfuðstólslækkanir erlendra lána duga ekki til. Leiðinni fylgja ýmsar kvaðir.Kynna sér vinnuramma um skuldaaðlögun. Skoða yfirlit yfir þau gögn sem bankinn fer fram á og safna þeim saman. Hafa samband við viðskiptastjóra eða sinn tengilið í Íslandsbanka.

Úrræði sem bankinn getur verið aðili að

ÚrræðiSkilgreiningFyrir hverja?Hver eru fyrstu skref fyrirtækisins?
NauðasamningarSjá 3. þátt laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.Fyrir fyrirtæki í varanlegum greiðsluerfiðleikum þar sem önnur úrræði duga ekki til, t.d. vegna þess að ekki hefur náðst samstaða meðal kröfuhafa.Leita aðstoðar sérfræðings/lögfræðings við gerð umsóknar til héraðsdóms og útvegun meðmæla tilskilins hluta kröfuhafa.
Samningur um frjáls skuldaskilSamningur á milli lánveitenda og skuldara um uppgjör skulda.Hentar þeim félögum sem eru í varanlegum greiðsluerfiðleikum og áðurnefnd úrræði duga ekki til. Þá þarf að ríkja fullt traust á milli samningsaðila.Hafa samband við viðskiptastjóra eða sinn tengilið í Íslandsbanka. Leita aðstoðar sérfræðinga, s.s. lögfræðings.