Beint á efnisyfirlit síðunnar
Úrræði

Skuldaaðlögun - Beina brautin

Skuldaaðlögun fyrirtækja er eitt þeirra úrræða sem Íslandsbanki býður fyrirtækjum við fjárhagslega endurskipulagningu. Úrræðið kemur til viðbótar öðrum hefðbundnum úrræðum við úrlausn á skuldavanda fyrirtækja sem í boði eru hverju sinni hjá bankanum. Skuldaaðlögun fyrirtækja byggir á Samkomulagi um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem undirritað var þann 15. desember 2010 af Samtökum Fjármálafyrirtækja, Samtökum atvinnulífsins, Fjármálaráðuneytinu, Viðskiptaráði og Félagi atvinnurekenda.

Lykilforsendur fjárhagslegrar endurskipulagningar

Úrvinnsla skuldaaðlögunar fyrirtækja miðast við Sameiginlegar reglur fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja sem settar voru í samræmi við lög nr. 107/2009 og sem kynntar voru í mars 2009.

Markmið skuldaðlögunar er að endurskipuleggja fjárhagsskipan fyrirtækis svo rekstur þess verði tryggður til framtíðar.

Forsendur skuldaðlögunar eru m.a. að:

  • Traust og trúnaður sé í viðskiptasambandi fyrirtækis og bankans.
  • Rekstur fyrirtækis sé metinn lífvænlegur að lokinni fjárhagslegri endurskipulagningu.
  • Samstarf við og aðkoma núverandi eigenda og stjórnenda sé mikilvæg fyrir framtíðarrekstur fyrirtækisins.
  • Fyrirtækið veiti bankanum fullnægjandi upplýsingar til að leggja mat á fjárhagslega endurskipulagningu.

Skuldaaðlögun er sérstaklega ætluð litlum og meðalstórum fyrirtækjum með heildarskuldir undir einum milljarði króna. Úrvinnsla fyrirtækja með skuldastöðu umfram þá fjárhæð byggir öllu jafna á hefðbundnum úrræðum bankans.

Skuldaðlögun miðast við að Íslandsbanki sé aðalkröfuhafi fyrirtækisins, enda getur aðkoma annarra kröfuhafa haft áhrif á endanlega útfærslu endurskipulagningar eða staðið í vegi fyrir því að skuldaaðlögun nái fram að ganga.

Samhliða greiningu á rekstri fyrirtækja og rekstrarumhverfi er mikilvægt að leitast sé við að finna leiðir til að hagræða í rekstri eins og kostur er. Dæmi um slíkt er sala órekstrartengdra eigna eða óarðbærra rekstrareininga.

Aðlögun skulda að rekstrar- eða eignavirði

Skuldaaðlögun byggir á ítarlegri greiningu á sjóðsstreymi, eignastöðu og rekstrarvirði fyrirtækis. Fjárhagsleg endurskipulagning í formi skuldaðlögunar miðast við að tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækisins og byggir á þeirri forsendu að rekstrarvirði þess sé umfram upplausnarvirði.

Við skuldaaðlögun eru skuldir fyrirtækis færðar að rekstrarvirði þess eða eignavirði hvort heldur hærra er, að viðbættum öðrum tryggingum. Mat á virði tekur til heildareigna fyrirtækisins, þ.e. að viðbættum eignum sem ekki tengjast rekstri. Mat á rekstrarvirði byggir á ítarlegri greiningu á framtíðar sjóðsstreymi, rekstrarhorfum og markaðsaðstæðum. Mat á virði eigna byggir á mati fagaðila svo sem löggiltra fasteignasala eða annarra þar til bærra aðila.

Lán innan greiðslugetu fyrirtækis

Lán innan greiðslugetu miðast við greiðsluþol fyrirtækisins, þ.e. miðað við sjóðsstreymis- og rekstraráætlun fyrirtækisins. Kjör og endurgreiðsluferill lána að lokinni fjárhagslegri endurskipulagningu taka mið af lánareglum bankans, eðli fjármögnunar, trygginga og lánshæfi fyrirtækisins. Samningur um skuldaaðlögun felur í sér að lán eftir endurskipulagningu verði í þeim gjaldmiðlum sem endurspegla tekjur fyrirtækisins.

Lán utan greiðslugetu fyrirtækis

Við skuldaðlögun er möguleiki á að lán sem eru utan greiðslugetu og umfram virði fyrirtækis verði afskrifuð strax. Nái greiðslugeta fyrirtækis ekki að standa undir lánum sem nema virði þess, að viðbættum öðrum tryggingum, er gert ráð fyrir að eigendur leggi félaginu til nýtt eigið fé.

Biðlán

Í þeim tilvikum að eigendur hafa ekki tök á að leggja fyrirtækinu til nýtt eigið fé, þá er möguleiki að veitt sé sérstakt biðlán til 3ja ára. Skilyrði biðláns er að greiðslugeta fyrirtækis sé umfram 70% af virði þess, eigna og/eða undirliggjandi trygginga. Biðlán er án greiðslu vaxta og afborgana og bera þau lága vexti sem færðir eru árlega við höfuðstól.

Ívilnun á móti nýju eigin fé

Almennt er gerð krafa um nýtt eigið fé samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu til að stuðla að heilbrigðum fjárhag fyrirtækja til framtíðar. Því eru eigendur ávallt hvattir til að setja inn nýtt eigið fé eða laða að nýja fjárfesta.

Til að hvetja enn frekar til styrkingar á rekstri fyrirtækja samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu veitir bankinn tímabundna ívilnun á móti nýju eigin fé. Þannig færir bankinn skuldir niður um 0,5 kr. á móti hverri 1 kr. af nýju eigin fé sem kemur til niðurgreiðslu skulda allt að 70% af virði fyrirtækisins og/eða undirliggjandi trygginga/eigna.

Almennt um skuldaðlögun

Við mat á hæfi fyrirtækja til skuldaaðlögunar þarf að vera fullreynt að vandi þeirra sé með þeim hætti að ekki sé mögulegt að aðlaga greiðslubyrði að greiðslugetu með öðrum hefðbundnum úrræðum svo sem skilmálabreytingum, tímabundinni aðlögun endurgreiðsluferils eða öðrum almennum aðgerðum.

Þá geta aðstæður kallað á aðrar útfærslur en hér er lýst, svo sem uppskiptingu félaga eða nýtingu breytiréttar og/eða áskriftarréttinda (warrants).

Skattalegar kvaðir sökum ívilnana í tengslum við skuldaaðlögun eru á ábyrgð fyrirtækis og ber forsvarsmönnum þeirra að kanna þær til hlítar.

Kostnaður við vinnu vegna skuldaaðlögunar greiðist af fyrirtæki og er breytilegur eftir fjárhæð skulda og umfangi hverju sinni.