Höfuðstólslækkun eignaleigusamninga

Fyrirtæki með fjármögnunarleigusamninga hjá Íslandsbanka Fjármögnun geta nú lækkað höfuðstól* samninga í erlendum myntum. Höfuðstóll samningsins er lækkaður m.v. ákveðið gengi. Samningnum er svo breytt í íslenskar krónur með breytilega, óverðtryggða vexti. Lækkunin getur numið allt að 25%. Lækkun höfuðstólsins er breytileg eftir myntum.

Höfuðstólslækkun felur í sér að

  • Höfuðstóllinn færist úr erlendri mynt yfir í íslenskar krónur með breytilegum óverðtryggðum vöxtum samkvæmt gjaldskrá Íslandsbanka Fjármögnunar.
  • Viðskiptavinir geta valið um að halda samningstíma óbreyttum eða lengja hann um 3/4 af eftirstöðvatíma samnings, en þó að hámarki 36 mánuði.
  • Afsláttur sem nemur 2,6 prósentustigum er veittur af vöxtum fyrstu 12 mánuðina. Vextir verða því 8,75% fyrstu 12 mánuðina miðað við þá gjaldskrá sem nú er í gildi.
  • Breyting á gengi íslensku krónunnar hefur engin áhrif á eftirstöðvar**, enda er búið að umbreyta grunnmyntum samningsins úr erlendri mynt yfir í óverðtryggðar íslenskar krónur.
  • Vakin er athygli á því að andvirði höfuðstólslækkunar myndar tekjuskattsstofn.

Skoðaðu samninginn þinn

Hverjir geta sótt um höfuðstólslækkun?

  • Fyrirtæki sem tóku/yfirtóku samninga í erlendum myntum fyrir 15. október 2008 .
  • Fyrirtæki sem eru í skilum.

Kostir

  • Höfuðstóll samningsins lækkar.
  • Veiking á gengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum myntum hefur engin áhrif á höfuðstól samningsins.
  • Jafnari mánaðarleg greiðslubyrði.

Ókostir

  • Það er búið að festa höfuðstól í íslenskum krónum og því myndi styrking á gengi íslensku krónunnar ekki lækka höfuðstól samningsins.
  • Vaxtakostnaður eykst þar sem óverðtryggðir vextir eru nú hærri en erlendir vextir.
  • Vaxtakostnaður getur einnig aukist ef viðskiptavinur kýs að lengja samnings sinn.

* Þegar rætt er um höfuðstól er átt við samningsviðmiðun Fjármögnunarleigusamninga.
** Þegar rætt er um eftirstöðvar er átt við samningsskuldbindingu Fjármögnunarleigusamninga.

Spurt og svarað

Hvaða fyrirtæki eiga rétt á höfuðstólslækkun?

Öll fyrirtæki sem tóku eða yfirtóku Fjármögnunarleigusamninga í erlendum myntum hjá íslandsbanka Fjármögnun fyrir 15. október 2008 og eru með samningana í skilum.

Verður hægt að fá höfuðstólslækkun en halda samningnum áfram í erlendum myntum?

Nei. Samhliða höfuðstólslækkun breytist myntsamsetningin í íslenskar krónur (óverðtryggðar).

Verður hægt að vera áfram með gengistryggða samninga?

Já, en engar sérstakar lausnir verða í boði fyrir þá samninga.

Er hægt að breyta hluta af samningi?

Nei, breytingin á alltaf við samninginn í heild sinni. Ekki er hægt að undanskilja einstaka myntir.

Breytist greiðslubyrði á samningi við höfuðstólslækkun?

Já, hún breytist þar sem höfuðstóll samnings verður ekki í erlendum myntum heldur í íslenskum krónum sem bera óverðtryggða vexti. Hægt verður að lengja samninginn til þess að greiðslubyrðin lækki.

Hver er kostnaðurinn við þessa breytingu?

Breytingin kostar kr. 2.900,-.

Hvernig er skattaleg meðhöndlun vegna lækkunar á höfuðstól og hvernig er það fært í bókhald félagsins?

Fjármögnunarleigusamningar
Þá lækka leigugreiðslur sem eru gjaldfærðar í bókhaldið – og gerist það við bókun á hverjum leigureikningi fyrir sig.

Hvernig fer með vsk vegna niðurfellingarinnar?

Fjármögnunarleiga:
Virðisaukaskattur leggst á lægri leigugreiðslu og bókast eins og áður.

Hvar get ég sótt um höfuðstólslækkun?

Hægt er að sækja um höfuðstólslækkun á islandsbanki.is/fjarmognun ef samtals samningsskuldbinding fyrirtækis er undir 50 m.kr. Samningsskuldbinding pr. samning má ekki vera hærri en 10 m.kr. Ef þetta á ekki við geta viðskiptavinir snúið sér til ráðgjafa Íslandsbanka Fjármögnunar.

Er hægt að gera tækjaskipti eftir höfuðtólslækkun?

Já, mögulegt er að framkvæma tækjaskipti eftir höfuðstólslækkun og er þá miðað við sömu reglur Íslandsbanka Fjármögnunar og áður hvað varðar tækjaskipti.

Er hægt að yfirtaka samninga eftir höfuðstólslækkun?

Já, mögulegt er að framkvæma yfirtöku eftir höfuðstólslækkun og er þá miðað við sömu reglur Íslandsbanka Fjármögnunar og áður hvað varðar yfirtökur.

Er hægt að greiða inná höfuðstól samnings sem hefur fengið höfuðstólslækkun?

Já, hægt að greiða inn á samninga líkt og áður. Greiða þarf uppgreiðslugjald í samræmi við samningsskilmála.

Eru viðskiptavinir að fyrirgera rétti sínum ef samningar í erlendum myntum verða dæmdir ólöglegir?

Nei viðskiptavinir hafa sömu réttindi og fyrir höfuðstólslækkun.