Sveitarfélög
Íslandsbanki hefur á að skipa sérfræðingum á fyrirtækjasviði sem einbeita sér að greiningu á málefnum og fjármálum sveitarfélaga. Staða sveitarfélaga hefur verið mjög til umfjöllunar á síðustu misserum þar sem sveitarfélög hafa þurft að leggjast í víðtækar aðhaldsaðgerðir og endurfjármögnun.
Starfsfólk Íslandsbanka hefur tekið þátt í fjármögnun ýmissa verkefna á vegum sveitarfélaga á undanförnum árum og skapað sérþekkingu á því sviði. Bankinn veitir sveitarfélögum og félögum í þeirra eigu víðtæka þjónustu. Má þar nefna almenna bankaþjónustu, fjármögnun til lengri og skemmri tíma, gjaldmiðlastýringu, ráðgjöf við breytingar á eignarhaldi og endurskipulagningu fyrirtækja og eignarstýringarþjónustu.
Rósa Júlía Steinþórsdóttir

Viðskiptastjóri
Sölvi Sturluson

Lánastjóri
