Innkaupakort

Innkaupakort er afar hentugt við kaup á rekstrarvörum og þjónustu. Beðnakerfi og önnur fyrirhöfn segir nú sögunni til.

Nánari upplýsingar: innkaupakort@islandsbanki.is

Þinn ávinningur

  • Aukin hagræðing
  • Lengri greiðslufrestur
  • Auðveldari útgjaldastýring
  • Rauntímayfirlit yfir útgjöld
  • Aðgangur að færslum á netinu
  • Allt að 75% sparnaður við umsýslu reikninga
  • Færslur rafrænt í bókhald

Sparar tíma og vinnu

Einfaldara innkaupaferli leiðir til sparnaðar á tíma og vinnu. Korthafi þarf ekki sérstakt leyfi til að kaupa rekstrarvörur eða fylla á fyrirtækisbílinn.

Lengri greiðslufrestur

Greiðslufrestur er til 25. dags næsta mánaðar sem er lengri frestur en vegna annarra greiðslukorta eða almennra reikningsviðskipta.

Einstök yfirsýn yfir útgjöld

Hægt er að skoða allar færslur á netinu. Þannig fæst yfirsýn útgjalda fyrirtækis, greind niður á korthafa, deildir, stað, stund og söluaðila.

Rafrænar færslur í bókhald

Með því að færa færslur rafrænt í bókhald nýtast rafrænar upplýsingar frá söluaðila. Ekki þarf að margskrá sömu upplýsingarnar.

Dæmi um útgjöld sem fyrirtæki setja á Innkaupakort

  • Þjónustusamningar vegna tölva, tækja eða sorphirðu
  • Rekstrarvörur fyrir mötuneyti eða skrifstofu
  • Fastir reikningar vegna rafmagns eða hita
  • Áskrift að dagblöðum og tímaritum
  • Smáinnkaup, veitingar fyrir fundi, bensín, matur á ferðalögum

Hafðu samband