
Íslandsbanki býður upp á fjölbreytt úrval kreditkorta frá þremur þekktustu og virtustu kortafyrirtækjum í heimi - MasterCard, Visa og American Express.

Ferðatryggingar fylgja kreditkortum og er tryggingavernd þeirra mismunandi eftir tegund kreditkorts.
Ferðaávísun MasterCard er eitt besta fríðindakerfið á markaðnum því hana má nota hjá öllum söluaðilum flugferða hér á landi, ferðaskrifstofum, Icelandair og Iceland Express. Fyrirtækið ákveður hvort söfnun ferðaávísunar rennur til fyrirtækisins eða starfsmanns þess.
Vildarpunktar Icelandair er eitt elsta og útbreiddasta fríðindakerfið á markaðnum. Korthafinn safnar vildarpunktum með almennri notkun kortins og kaupum á flugferðum hjá Icelandair.
Endurgreiðsla af veltu kreditkortsins er ný þjónusta á íslenskum fjármálamarkaði. Íslandsbanki býður, fyrstur banka, árlegra endurgreiðslu til fyrirtækisins. Þannig rennur hluti útgjaldanna aftur inn í rekstur fyrirtækisins.