Innkaupakort
Innkaupakort er afar hentugt við kaup á rekstrarvörum og þjónustu. Beiðnakerfi og önnur fyrirhöfn segir nú sögunni til. Korthafi þarf ekki sérstakt leyfi til að kaupa rekstrarvörur eða fylla á fyrirtækisbílinn.
Kostir
- Aukin hagræðing
- Lengri greiðslufrestur
- Auðveldari útgjaldastýring
- Rauntímayfirlit yfir útgjöld
- Aðgangur að færslum á netinu
- Sparnaður við umsýslu reikninga
- Færslur rafrænt í bókhald
Lengri greiðslufrestur
Greiðslufrestur er til 25. dags næsta mánaðar sem er lengri frestur en vegna annarra greiðslukorta eða almennra reikningsviðskipta.Einstök yfirsýn yfir útgjöld
Hægt er að skoða allar færslur á netinu. Þannig má skoða útgjöld fyrirtækis og flokka þau niður á korthafa, deildir, stað, stund og söluaðila.
Rafrænar færslur í bókhald
Með því að færa færslur rafrænt í bókhald nýtast rafrænar upplýsingar frá söluaðila. Ekki þarf að margskrá sömu upplýsingarnar.
Dæmi um útgjöld sem fyrirtæki setja á Innkaupakort
- Þjónustusamningar vegna tölva, tækja eða sorphirðu
- Rekstrarvörur fyrir mötuneyti eða skrifstofu
- Fastir reikningar vegna rafmagns eða hita
- Áskrift að dagblöðum og tímaritum
- Smáinnkaup, veitingar fyrir fundi, bensín, matur á ferðalögum
