Netlaunaseðlar
Með netlaunaseðlum skrá fyrirtæki launaupplýsingar til birtingar í netbönkum starfsmanna. Með þessu móti liggja engar trúnaðarupplýsingar á víðavangi og fyrirtæki spara dýrmætan tíma og peninga. Viðskiptavinur þarf að láta virkja þjónustuna í viðskiptaútibúi sínu.
Kostir
- Launaseðlar sendir í netbanka starfsmanna, óháð viðskiptabanka þeirra
- Upplýsingar sendar beint úr bókhaldskerfi í gegnum Fyrirtækjabankann
- Aukið öryggi upplýsinga
- Yfirlit launaseðla aftur í tímann varðveitast í Netbanka starfsmannsins
- Minni vinna og kostnaður vegna prentunar og dreifingar
Nánar um Netlaunaseðla
- Fyrirtæki senda launaupplýsingar til Íslandsbanka sem gerir þessar upplýsingar aðgengilegar fyrir starfsmenn fyrirtækja í þeirra eigin netbönkum
- Nokkur stærstu fyrirtæki landsins eru þegar að nýta þjónustuna
- Starfsmenn fyrirtækja geta verið í viðskiptum í hvaða banka eða sparisjóði sem er og notið þjónustunnar
- Birtist undir Yfirlit > Netyfirlit í netbönkum einstaklinga
- Senda má fyrirspurnir á fyrirtækjafulltrúa Íslandsbanka eða á fyrirtaeki@islandsbanki.is
Kostir þjónustunnar
- Fyrirtæki sparar pappír og umslög
- Fyrirtæki sparar vinnu við prentun,dreifingu og upplýsingagjöf
- Launþegar hafa aðgang að yfirliti launaseðla aftur í tímann
- Launaupplýsingar rata örugglega á réttan stað
Hvernig virkar tæknilega hliðin?
- Bókhaldskerfi fyrirtækja senda inn launaskrá til Íslandsbanka í gegnum Fyrirtækjabankann
- Íslandsbanki sendir upplýsingarnar til Reiknistofu bankanna
- Netbankar starfsmanna lesa þessar upplýsingar frá Reiknistofu bankanna
- Starfsmenn nálgast launaseðla sína í Netbankanum (Viðskiptavinir þurfa ekki að vera viðskiptavinir Íslandsbanka)
Hvað þarf fyrirtæki að gera?
- Í upphafi þarf fyrirtæki að hafa samband við sinn fyrirtækjafulltrúa hjá Íslandsbanka
- Fyrirtækið skrifar undir samning og er skráð í þjónustuna
- Netlaunaseðlar eru sendir beint úr bókhaldskerfinu til Reiknistofunnar í gegnum Fyrirtækjabankann undir Yfirlit > Rafræn skjöl > Senda inn rafræn skjöl.
Öryggi
- Upplýsingarnar eru óaðgengilegar öllum óviðkomandi
- Mannshöndin kemur aldrei nálægt þeim þar sem þær flæða beint úr launakerfi í Reiknistofu bankanna og síðan inn í Netbanka viðkomandi
- Launaseðlarnir birtast í netbanka sem er skráður á kennitölu launþega
