Fyrirtækjabanki
Í Fyrirtækjabankanum er hægt að sjá með einföldum hætti fjárhagslega stöðu fyrirtækisins, millifæra og greiða alla almenna reikninga, fylgjast með stöðu lána, innheimta viðskiptakröfur og fylgjast með þeim og eiga erlend viðskipti. Einnig er hægt að tengja bókhaldskerfi beint við Fyrirtækjabankann og auðvelda þannig alla daglega vinnslu.
Kostir
- Lifandi upplýsingar um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins
- Beintenging við bókhaldskerfi
- Skráning greiðslna
- Erlend viðskipti
- Skil á staðgreiðslu skatta
- Skil á VSK-skýrslum
- Veflyklar RSK geymdir á vísum stað
- Einfalt innheimtukerfi
- Aðgangsstýring þar sem notendum er veittur aðgangur að Fyrirtækjabankanum eftir ábyrgðarsviðum
- Samþykktarferli fyrir greiðslur
- Verðbréfaviðskipti með hlutabréf og verðbréfasjóði.
