Daglegur rekstur

Félaga- og húsfélagaþjónusta

Húsfélagaþjónusta Íslandsbanka sér um fjármálaumstang sem fylgir húsfélaginu. Í gegnum sérsniðinn félagabanka og þjónustufulltrúa fæst góð yfirsýn yfir fjármál og rekstur húsfélagsins.

Kostir

  • Sérstakur þjónustufulltrúi
  • Greiðsluþjónusta
  • Greiðsluáætlun
  • Innheimtuþjónusta
  • Hagkvæm framkvæmdalán

Sérsniðinn Félagabanki

  • Tilboð til nýrra húsfélaga í viðskiptum
  • Sérsniðinn Félagabanki á islandsbanki.is
  • Sjálfvirkt bókhald
  • Mögulegt að prenta rekstraryfirlit fyrir húsfundi
  • Góð yfirsýn yfir stöðu húsfélagsins
  • Greiðsla reikninga
  • Skoða greiðslustöðu einstakra íbúða
  • Stofna og fella niður kröfur

Eigin þjónustufulltrúi

Húsfélagið þitt getur haft eigin þjónustufulltrúa sem sér um öll fjármál húsfélagsins. Hann kemur málum í þægilegan farveg í upphafi og afgreiðir líka þau mál sem upp koma hverju sinni.

Greiðsluþjónusta

Greiðsluþjónusta Íslandsbanka fær reikninga húsfélagsins senda, greiðir þá á réttum tíma og sendir svo greiðsluyfirlit til félagsins.

Greiðslujöfnun

Með greiðslujöfnun er hægt að jafna sveiflur í útgjöldum yfir árið með því að greiða sömu upphæð mánaðarlega. Þá er útbúin greiðsluáætlun til eins árs í senn.

Greiðsluáætlun - fyrir hverja íbúð

Ef húsfélagið er að fara út í framkvæmdir getur bankinn útbúið greiðsluáætlun fyrir hverja íbúð í samráði við húsfélagið. Þannig er hægt að fá betri yfirsýn yfir útgjöld hvers og eins.

Innheimta

Innheimtuþjónusta tryggir hagræði við innheimtu krafna og dráttarvaxta sem sparar húsfélaginu bæði tíma og innheimtukostnað. Bankinn sér um að skrá kröfur, prenta greiðsluseðla, senda þá út og koma þeim til innheimtufyrirtækis í frekari innheimtu, gerist þess þörf. Mögulegt er að skoða yfirlit krafna í Félagabankanum á islandsbanki.is.

Hagkvæm lán fyrir framkvæmdum

Húsfélaginu standa til boða hagstæð framkvæmdalán til lengri eða skemmri tíma. Við aðstoðum við að finna réttu leiðina.

Inngöngutilboð

Húsfélögum býðst ókeypis mánaðargjald fyrstu sex mánuðina.