Bílasamningur

Láttu okkur um að kaupa bílinn

Í bílasamningi felst að Íslandsbanki Fjármögnun kaupir þann bíl eða ferðavagn sem þú óskar eftir og leigir þér í umsaminn tíma. Í lok samningstímans verður bíllinn eða ferðavagninn þinn. Íslandsbanki Fjármögnun er aðeins skráður eigandi á samningstímanum, þú ert hinsvegar skattalegur eigandi.

Helstu kostir bílasamnings Íslandsbanka Fjármögnunar

  • Allt að 70% fjármögnun
  • Lánstími er allt að 7 ár
  • Enginn þinglýsingarkostnaður
  • Allt að 50% afsláttur af lántökugjöldum fyrir Vildarvini Íslandsbanka Fjármögnunar
  • Hægt er að greiða inn á samninginn og greiða hann upp hvenær sem er
  • Ef þú kýst að skipta út bílnum eða ferðavagninum á samningstímanum geturðu sameinað eldri samning og nýjan
  • Þú eignast bílinn eða ferðavagninn þegar samningnum lýkur

Reiknaðu dæmið

Settu upp dæmið í reiknivélum okkar

Sjö ára regla
Aldur bíls Samningur Fjármögnun
Nýr 7 ár 70%
1 árs 6 ár 70%
2 ára 5 ár 70%
3 ára 4 ár 70%
4 ára 3 ár 70%
5 ára 2 ár 70%
6 ára 1 ár 70%

Fyrir notaða bíla jafnt sem nýja

Samningur til kaupa á nýjum bílum og ferðavögnum býðst til allt að 7 ára. Fyrir notaða bíla eða vagna gildir að samanlagður aldur bíls eða vagns og samningstími má mest vera 7 ár. Lánað er til kaupa á notuðum bílum að lágmarki kr. 600.000.

Sveigjanlegur samningur

Hægt er að greiða inn á samninginn og greiða hann upp hvenær sem er á samningstímanum. Aukagreiðslur dragast beint frá höfuðstól. Enginn aukakostnaður fylgir uppgreiðslu.


Hafðu samband