Bílalán

Við lánum þér fyrir bílnum

Í bílaláni felst að Íslandsbanki Fjármögnun veitir lán fyrir kaupunum með veðskuldabréfi. Þú kaupir bílinn eða ferðavagninn og ert skráður eigandi hans frá upphafi. Sem tryggingu fyrir láninu hefur Íslandsbanki Fjármögnun fyrsta veðrétt í bílnum eða ferðavagninum.

Helstu kostir bílaláns Íslandsbanka Fjármögnunar

  • Allt að 70% fjármögnun
  • Lánstími er allt að 7 ár
  • Allt að 50% afsláttur af lántökugjöldum fyrir Vildarvini Íslandsbanka Fjármögnunar
  • Hægt er að greiða inn á lánið eða greiða það upp hvenær sem er
  • Ef þú kýst að skipta út bílnum eða ferðavagninum á samningstímanum geturðu sameinað eldri samning og nýjan

Reiknaðu dæmið

Settu upp dæmið í reiknivélum okkar

Sjö ára regla
Aldur bíls Samningur Fjármögnun
Nýr 7 ár 70%
1 árs 6 ár 70%
2 ára 5 ár 70%
3 ára 4 ár 70%
4 ára 3 ár 70%
5 ára 2 ár 70%
6 ára 1 ár 70%

Fyrir notaða bíla jafnt sem nýja

Lán til kaupa á nýjum bílum og ferðavögnum bjóðast til allt að 7 ára. Fyrir notaða bíla eða vagna gildir að samanlagður aldur bíls eða vagns og lánstími má mest vera 7 ár. Lánað er til kaupa á notuðum bíl að lágmarki kr. 600.000.

Sveigjanlegt lán

Hægt er að greiða inn á lánið eða greiða það upp hvenær sem er á lánstímanum. Aukagreiðslur dragast beint frá höfuðstól. Enginn aukakostnaður fylgir uppgreiðslu.


Hafðu samband