
Hvort sem ætlunin er að fjármagna atvinnutæki eða atvinnuhúsnæði, þá hefur Íslandsbanki Fjármögnun réttu fjármögnunarleiðina. Íslandsbanki Fjármögnun býður upp á fjármögnunarleigu, kaupleigu og fjárfestingarlán til fjármögnunar á atvinnutækjum.Íslandsbanki Fjármögnun býður kaupleigu til fjármögnunar á atvinnuhúsnæði.
Fyrstu tvær leiðirnar eru dæmi um eignaleigu. Í henni felst að Íslandsbanki Fjármögnun kaupir atvinnutækið eða atvinnuhúsnæðið og leigir þér í ákveðinn tíma. Fjárfestingarlán eru hinsvegar skuldabréfalán með veði í tækinu.
Berðu leiðirnar saman hér að neðan til að finna þá leið sem hentar þér best. Með reiknivélinni geturðu borið saman kostnað við ólíkar fjármögnunarleiðir.
| |
Eignaleiga | Fjárfestingarlán | |
|---|---|---|---|
| Fjármögnunarleiga | Kaupleiga | Fjárfestingarlán | |
| Hvað er fjármagnað? | Bifreiðar og atvinnutæki | Bifreiðar, vélar og húsnæði | Skráningarskyldar bifreiðar |
| Samningstími | Allt að 10 ár | Allt að 10 ár | Allt að 10 ár |
| Fjármögnun | Allt að 60% | Allt að 60% | Allt að 60% |
| Virðisaukaskattur | Vsk. leggst á greiðslur | Vsk. greiddur í upphafi | Vsk. greiddur í upphafi |
| Greiðslur | Jafnar eða breytilegar | Jafnar eða breytilegar | Jafnar eða lækkandi |
| Vextir | Breytilegir | Breytilegir | Breytilegir |
| Tæki eignfært | Nei | Já | Já |
| Gjaldfærslur | Leigugreiðslur | Vextir og afskriftir | Vextir og afskriftir |
| Eigandi á samningstíma | Íslandsbanki Fjármögnun | Íslandsbanki Fjármögnun | Viðskiptavinur |
| Lok samningstíma | Hægt að kaupa | Hægt að kaupa | Veði aflétt af tækinu |
| Nánar | Nánar | Nánar | |
Athugasemd: Samningstími er allt að 15 ár þegar um atvinnuhúsnæði er að ræða.