
Í kaupleigu felst að Íslandsbanki Fjármögnun kaupir þá vél sem þú hefur augastað á og leigir þér í umsaminn tíma. Að þeim tíma loknum eignast þú vélina með lokagreiðslu og færð afsalið í þínar hendur.
Einn helsti kosturinn við kaupleigu, líkt og aðra eignarleigu, er að hún bindur ekki dýrmætt rekstrarfé. Með endurfjármögnun nýlegra tækja má bæta lausafjárstöðu fyrirtækisins og auðvelda þannig fjárhagslega endurskipulagningu. Með því að láta Íslandsbanka Fjármögnun kaupa tækið fást auk þess staðgreiðslukjör. Þá fylgir henni margvíslegt skattalegt hagræði. Kaupleiga hentar best þegar ekki er um skattskyldan rekstur að ræða.