Fjármögnunarleiga

Leigðu tækið og gjaldfærðu leiguna

Í fjármögnunarleigu felst að Íslandsbanki Fjármögnun fjárfestir í atvinnutæki sem þú velur og leigir þér í ákveðinn tíma. Að samningstíma loknum býðst þér að skila tækinu eða framlengja samninginn.

Helstu kostir fjármögnunarleigu Íslandsbanka Fjármögnunar

  • Bindur ekki rekstrarfé
  • Staðgreiðslukjör tryggja lægri leigugreiðslur
  • Allt að 60% fjármögnun
  • Samið er til allt að 10 ára
  • Engin stimpilgjöld
  • Tækið sjálft er trygging fyrir samningnum
  • Leigugreiðslur er gjaldfærðar
  • Virðisaukaskattur er endurgreiddur í formi innskatts
  • Hægt er að fresta skattgreiðslum með styttingu samningstíma krónur
  • Hægt er að framlengja samninginn eða skila tækinu að samningstíma loknum

Hentugur kostur fyrir stærri fjárfestingar

Einn helsti kosturinn við fjármögnunarleigu, líkt og aðra eignarleigu, er að hún bindur ekki dýrmætt rekstrarfé. Með endurfjármögnun nýlegra tækja má bæta lausafjárstöðu fyrirtækisins og auðvelda þannig fjárhagslega endurskipulagningu. Með því að láta Íslandsbanka Fjármögnun kaupa tækið fást auk þess staðgreiðslukjör. Þá fylgir henni margvíslegt skattalegt hagræði. Fjármögnunarleiga hentar best þeim sem eiga í skattskyldum rekstri og geta þar með nýtt leigugreiðslur til skattalækkunar.

Reiknaðu dæmið


Hafðu samband