
Fjárfestingarlán er einfalt veðlán og hefur Íslandsbanki Fjármögnun fyrsta veðrétt í tækinu sem tryggingu.
Fjármagna má allt að 60% af verði tækisins án virðisaukaskatts með fjárfestingarláni. Með auknum tryggingum er meira að segja mögulegt að hækka hlutfallið enn frekar. Fjárfestingarlán eru hinsvegar fyrst og fremst ætluð þeim sem þurfa ekki á fullri fjármögnun að halda. Þú getur valið hvort þú greiðir jafnar afborganir af láninu eða jafnar greiðslur. Lántökukostnaður er sambærilegur við viðskiptabanka.