
Báðir þessir sjóðir hafa verið lokaðir frá 6. okt. 2008 þegar lokað var fyrir viðskipti með skuldabréf stóru bankanna í Kauphöll Íslands. Ekki er hægt að selja meirihluta eigna sjóðanna á markaði og því ekki hægt að mæta innlausnum sem kynnu að verða án þess að skerða hlut annarra sjóðfélaga. Unnið er að innheimtu bréfa í eign sjóðanna og athugað verður með opnun þeirra í byrjun árs 2010.