Veltusafn

Hentugur fjárfestingartími 1 mánuður+

Innlán fjármálafyrirtækja og skammtímaverðbréf með ábyrgð ríkissjóðs

Góður og hagkvæmur kostur til að ávaxta sparnað til skamms tíma. Hentar fjárfestingum til 1 mánaðar eða lengur.

Veltusafn er nýr verðbréfasjóður Íslandssjóða hf. sem fjárfestir í innlánum fjármálafyrirtækja og skammtímaverðbréfum með ábyrgð ríkissjóðs.

Helstu kostir

  • Mjög stuttur meðallíftími takmarkar sveiflur á gengi
  • Góð kjör á innlánamarkaði í krafti stærðar
  • Ódýr leið til virkrar stýringar innlána og ríkisverðbréfa
  • Ávallt laus til innlausnar með eins dags fyrirvara

Fjárfesta í sjóði Upplýsingablað

Markmið sjóðsins

Halda sveiflum á gengi í lágmarki með mjög stuttum líftíma eigna og skila jafnri og stöðugri ávöxtun. Sjóðurinn nýtir tækifæri á markaði með virkri stýringu innlána, víxla og ríkisskuldabréfa.

Fyrir hvern er sjóðurinn?

Sjóðurinn hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í skamman tíma. Meðallíftími fjárfestinga sjóðsins getur verið á bilinu 0 til 1 ár. Stuttur meðallíftími gerir það að verkum að gengi sjóðsins verður stöðugra en ella og að ólíklegt er að gengi hans lækki verulega sökum vaxtahækkunar. Ennfremur hefur hátt hlutfall innlána þau áhrif að gengið breytist lítið með sveiflum á markaði.

Að kaupa í sjóðnum

Eigna- og lífeyrisþjónusta Íslandsbanka er helsti söluaðili Íslandssjóða og veitir faglega ráðgjöf um uppbyggingu sparnaðar. Til að kaupa í sjóðnum, hafðu samband við ráðgjafa í síma 440-4920 eða notaðu Netbanka Íslandsbanka. Þú getur einnig komið og hitt ráðgjafa Eigna- og lífeyrisþjónustunnar á Kirkjusandi, 4. hæð.

Fjárfestingarmarkmið

Markmið sjóðsins er að fjárfesta 40% í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs og 50% í innlánum fjármálastofnana. Þar að auki stefni sjóðurinn á að eiga 5% í skuldabréfum sveitarfélaga og 5% í víxlum fjármálafyrirtækja. Heimilt er að auka vægi ríkisskuldabréfa upp í 100% og einnig er heimilt að auka vægi innlána í 80% og draga á móti úr vægi ríkisskuldabréfa.

 

Ítarefni
Upplýsingablað sjóðsins
Ávöxtunarblað sjóða
Útboðslýsing sjóðsins
Útdráttur úr útboðslýsingu
Ársreikningur verðbréfasjóðs
Almennt
Stofnár 2009
Grunnmynt ISK
Lágm.kaup/áskr. 10.000 kr./5.000 kr.
Rekstraraðili Íslandssjóðir hf.
Vörsluaðili Íslandsbanki hf.
Sjóðsstjórar Aldís Stefánsdóttir, Birna Jenna Jónsdóttir og Kristbjörn Helgason
Þóknanir
Kostnaður við kaup
0,10%
Árleg umsjónarlaun 0,40%
Afgreiðslugjald
300 kr.
Viðskiptapantanir
Kaup/Innlausn 1 viðskiptadagur (T+1)
Viðmiðunartími kl. 10.00-15:20

Skattlagning

Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Skv. breytingu á lögum 94/1996 með bráðabirgðaákvæði í lögum 70/2009 ber að greiða 15% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun frá 1. júlí 2009 til 31. desember 2009. Frá 1. janúar 2010 ber að greiða 18% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun.

Fjárfesting í afleiðum

Sjóðnum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á skuldabréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fjárfestum er bent á nánari útskýringar á beitingu afleiðna er að finna í útboðslýsingu sjóðsins.

Fjárfestingu í verðbréfasjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfasjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins, sérstaklega umfjöllun um áhættur, sjá nánar undir Ítarefni hér að ofan.

Umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.


Rekstraraðili

Hafðu samband

Ráðgjafar Eigna- og lífeyrisþjónustu eru við símann

Sími: 440 4920
eignastyring@islandsbanki.is

Þú getur einnig komið og hitt ráðgjafa á Kirkjusandi, 4. hæð.

Hafðu samband