
Ný löggjöf á sviði verðbréfaviðskipta tekur gildi 1. nóvember 2007. Löggjöfin byggir á tilskipun Evrópusambandsins (ESB) um markaði fyrir fjármálagerninga (Markets in Financial Instruments Directive, skammstafað MiFID). Tilskipun þessi hefur í för með sér umfangsmiklar breytingar á reglum um verðbréfaviðskipti innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og hafa þær áhrif á samskipti fjármálafyrirtækja og viðskiptavina þeirra.
Breytingarnar hafa áhrif á alla þá einstaklinga og fyrirtæki (lögaðila) sem eiga í verðbréfaviðskiptum. Tilskipunin kemur viðskiptavinum til góða þar sem henni er ætlað að vernda fjárfesta, auka gegnsæi og stuðla að virkari samkeppni. Með setningu MiFID-laganna aukast jafnframt kröfur um nákvæmni upplýsinga. Slík ákvæði auðvelda viðskiptavinum að taka ákvarðanir um fjárfestingar og auk þess njóta þeir góðs af betra skipulagi um fjárfestingar og meiri verndar.
Tilgangurinn með MiFID er að koma á laggirnar einum evrópskum markaði fyrir fjárfestingarþjónustu. Einnig til að bregðast við breytingum og nýjungum í öryggismálum og uppfæra með því lög og reglur. Tilskipunin á að vernda fjárfesta með því að gera markaði dýpri og samkeppnishæfari og betur í stakk búna til að bregðast við hugsanlegum svikum og misnotkun.
MiFID lögunum er ætlað að breikka gildissvið laga um fjármálaþjónustu í Evrópu og ná til meirihluta fjármálafyrirtækja sem starfa á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Þær gilda meðal annars um fjárfestingarbanka, sjóðstýringarfyrirtæki og verðbréfamiðlanir.
Íslandsbanka ber, samkvæmt MiFID, að flokka viðskiptavini sína í almenna fjárfesta, fagfjárfesta eða viðurkennda gagnaðila, til að endurspegla mismunandi stöðu þeirra. Þetta þýðir að vernd viðskiptavina verður mismikil eftir því í hvaða flokki þeir lenda. Þjónustan verður sniðin sem best að ákveðnum viðmiðunum svo sem þekkingu þeirra á fjármálum, reynslu og fjárfestingarmarkmiðum. MiFID gerir fyrirtækjum skylt að tryggja að allar upplýsingar, þar með talin markaðssamskipti við viðskiptavini eða hugsanlega viðskiptavini, séu sanngjarnar, skýrar og ekki á nokkurn hátt misvísandi.
Hér að neðan geta viðskiptavinir Netbanka samþykkt nýja skilmála samnings um verðbréfaviðskipti hjá Íslandsbanka og Verklagsreglur Íslandsbanka um framkvæmd viðskiptafyrirmæla, auk annarra atriða sem lúta að framkvæmd viðskipta. Að auki getur viðskiptavinur veitt nauðsynlegar upplýsingar með því að svara spurningalista vegna verðbréfaviðskipta
Komi upp ágreiningur milli viðskiptavinar og bankans um framkvæmd verðbréfaviðskipta er viðskiptavini unnt að senda bankanum kvörtun. Með kvartanir verður farið samkvæmt reglum Íslandsbanka um meðferð kvartana. Viðskiptavinur getur jafnframt skotið ágreiningi til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki. Nefndin er í umsjón Fjármálaeftirlitsins en nálgast má málsskotseyðublöð hjá bankanum eða á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Einnig er vakin athygli á lögum nr. 98/1999 um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
Ráðgjafar Eigna- og lífeyrisþjónustu eru við símann
Sími: 440 4920
eignastyring@islandsbanki.is