Íslandssjóðir

Íslandssjóðir hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi semrekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingarsjóða skv. 27. gr. laga nr. 161/2002sbr. B-lið II. kafla laga nr. 30/2003. Félagið stýrir fjárfestingum verðbréfa-og fjárfestingarsjóða og sér að auki um fjárfestingar fyrir ISB Mutual Fund,sem starfrækir verðbréfasjóði skráða í Lúxemborg.

Íslandssjóðir hf. var upprunalega stofnað árið 1994 ognefndist þá Rekstrarfélag VÍB hf. Félagið annast daglegan reksturVerðbréfasjóða Íslandsbanka, sbr. 17. og 18. grein laga um verðbréfasjóði nr.30/2003, auk þess að sjá um daglegan rekstur Fjárfestingarsjóða Íslandsbanka,sem er ein sjóðsdeild. Að auki sér félagið um fjárfestingar fyrir ISB MutualFund, sem er verðbréfasjóður skráður í Lúxemborg. Hlutafé félagsins er 25 m.kr.Hluthafar eru tveir og er Íslandsbanki hf. skráður fyrir 99,7% af hlutafénu.

Á grundvelli 18. gr. laga um verðbréfasjóði nr. 30/2003 eruÍslandssjóðir hf. með samkomulag við Íslandsbanka um að sjá um hluta afdaglegum rekstri. Eignastýring Íslandsbanka annast markaðssetningu, sölu oginnlausn hlutdeildarskírteina og viðskiptaver Íslandsbanki annast bókhaldsjóðsdeilda, útreikning á innlausnarvirði og viðhald skrár yfir eigendurhlutdeildarskírteina.

Íslandssjóðir starfrækir úrval skuldabréfasjóða og hlutabréfasjóða.

Nánar á vef Íslandssjóða


Nánari upplýsingar

  • Íslandssjóðir
  • Kennitala: 690694
  • Aðsetur: Kirkjusandi 2,
    155 Reykjavík

Hafðu samband

Hafðu samband