Úrvalsvísitala - Sjóður 6

Hentugur fjárfestingartími 5 ár+

Vísitölusjóður

Vísitölusjóður sem fjárfestir í skráðum hlutabréfum í Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands.

Fjárfesta í sjóði Upplýsingablað

Markmið sjóðsins

Að ná sömu ávöxtun og Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands með vægisþaki (OMXI6 Cap ISK) að teknu tilliti til kostnaðar.

Fyrir hvern er sjóðurinn?

Sjóður 6 – Úrvalsvísitala hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í fimm ár eða lengur. Mælt er með því að sjóðurinn sé hluti af stærra verðbréfasafni þar sem sveiflur í gengi sjóðsins geta verið miklar og niðursveiflur á hlutabréfamörkuðum langar.

Fjárfestingarmarkmið

Sjóður 6 – Úrvalsvísitala er vísitölusjóður og fjárfestir í hlutabréfum sem skráð eru í Kauphöll Íslands (Nasdaq OMX Nordic Exchange) og skal vægi hvers félags endurspegla vægi þess í Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands með vægisþaki (OMXI6 Cap ISK).

Tímabundið má sjóðurinn eiga laust fé vegna breytinga á samsetningu vísitölunnar eða vegna markaðsaðstæðna. Sjóðnum er heimilt að fjárfesta í afleiðum, en að hámarki 10% af heildareignum.

 

Almennar upplýsingar

Ítarefni
Upplýsingablað
Ávöxtunarblað sjóða
Útboðslýsing sjóðsins
Útdráttur úr útboðslýsingu
Ársreikn. Íslandssjóða hf.
Verðskrá
Almennt
Stofnár 1991
Grunnmynt ISK
Lágm.kaup/áskr. 10.000 kr./5.000 kr.
Rekstraraðili Íslandssjóðir hf.
Vörsluaðili Íslandsbanki hf.
Sjóðsstjórn Mogens G. Mogensen
Þóknanir
Kostn. við kaup/áskr. 2,0%/1,5%
Árl. umsj.laun 0,80%
Afgreiðslugjald 300 kr.
Viðskiptapantanir
Kaup/innlausn 3 viðsk.dagar (T+3)
Viðmiðunartími kl. 15:20

Skattlagning

Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Greiða skal 10% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun sem fellur til fyrir 1. júlí 2009. Skv. breytingu á lögum 94/1996 með bráðabirgðaákvæði í lögum 70/2009 ber að greiða 15% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2009. Frá 1. janúar 2010 ber að greiða 18% fjármagnstekjuskatt.

Fjárfesting í afleiðum

Sjóðnum er heimilt að kaupa eða selja framvirkt hlutabréf með afleiðum eða afleiður á vísitölu aðallista enda sé það hluti af eignastýringu sjóðsins vegna innstreymis eða útstreymis eða vegna markaðsaðstæðna. Fjárfestum er bent á nánari útskýringar á beitingu afleiðna í útboðslýsingu sjóðsins.

Almennur fyrirvari

Skattlagning
Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Skv. breytingu á lögum 94/1996 með bráðabirgðaákvæði í lögum 70/2009 ber að greiða 15% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun frá 1. júlí 2009 til 31. desember 2009. Frá 1. janúar 2010 ber að greiða 18% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun.

Fjárfesting í afleiðum
Sjóðnum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á skuldabréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fjárfestum er bent á nánari útskýringar á beitingu afleiðna er að finna í útboðslýsingu sjóðsins.

Fjárfestingu í verðbréfasjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfasjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins, sérstaklega umfjöllun um áhættur, sjá nánar undir Ítarefni hér að ofan.

Gengisþróun og ávöxtun
Í línuriti gengisþróunar er birt gengi viðkomandi sjóðs sl. eitt ár. Ef sjóður er ekki orðinn ársgamall er birt gengissaga frá stofnun hans. Nafnávöxtun tímabila sem eru styttri en eitt ár er ekki reiknuð upp á ársgrundvöll heldur er þar um gengisbreytingu að ræða. Nafnávöxtun tímabila sem ná yfir eitt ár og meira er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Uppreikningur ávöxtunar miðast ávallt við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.

Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.


Rekstraraðili

Hafðu samband

Ráðgjafar Eigna- og lífeyrisþjónustu eru við símann

Sími: 440 4920
eignastyring@islandsbanki.is

Þú getur einnig komið og hitt ráðgjafa á Kirkjusandi, 4. hæð.

Hafðu samband