
Athugið að sökum breytinga á lögum um gjaldeyrismál nr. 87/1992 til að hefta fjármagnsflæði frá landinu þá er tímabundið lokað á fjárfestingar í verðbréfasjóðum í erlendum gjaldmiðlum nema í tilfellum endurfjárfestinga. Bent er á Eigna- og Lífeyrisþjónustu Íslandsbanka, í síma 440 4920 fyrir frekari upplýsingar.
Sjóðasjóður sem fjárfestir í erlendum hlutabréfum.
Heimssafn Íslandssjóða er sjóðasjóður (e. fund of funds) sem hefur það markmið að skila fjárfestum góðri ávöxtun til langs tíma með fjárfestingum í erlendum hlutabréfasjóðum.
Heimssafnið hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé til langs tíma og þola miklar verðsveiflur í von um hærri ávöxtun yfir lengra tímabil. Mælt er með því að Heimssafnið sé hluti af dreifðu eignasafni. Eignir sjóðsins eru í erlendum gjaldmiðlum, þ.a. fjárfestingunni fylgir einnig gengisáhætta. Heimssafnið hentar vel þeim sem vilja áhættudreifingu með fjárfestingu í safni hlutabréfasjóða, sem valið er saman af sérfræðingum og vandlega vaktað.
Eignir sjóðsins eru ávaxtaðar með fjárfestingum í hlutabréfasjóðum sem fjárfesta í hlutabréfum á alþjóðlegum mörkuðum, og uppfylla skilyrði laga um verðbréfasjóði (UCITS-sjóðir).
Stefna sjóðsins er að fjárfesta í hlutabréfasjóðum sem hafa náð góðum árangri í fjárfestingum sínum með gegnsærri og agaðri fjárfestingarstefnu. Eign sjóðsins í einstökum verðbréfasjóðum má að hámarki nema 20% af heildareignum. Sjóðnum er óheimilt að fjárfesta í einstökum verðbréfasjóðum sem fjárfesta meira en 10% af eignum sínum í hlutdeildarskírteinum annarra verðbréfasjóða.
Jafnan skal sjóðurinn vera fullfjárfestur í hlutabréfasjóðum og hlutabréfum, en sjóðnum er þó heimilt að fjárfesta allt að 10% í skuldabréfum og víxlum til skamms tíma eða eiga laust fé til að mæta innlausnum. Stefnt er að því að ná hærri ávöxtun en heimsvísitala Morgan Stanley Capital International.
| Ítarefni | |
|---|---|
| Upplýsingablað | |
| Ávöxtunarblað sjóða | |
| Útboðslýsing sjóðsins | |
| Útdráttur úr útboðslýsingu | |
| Ársreikn. Íslandssjóða hf. | |
| Verðskrá | |
| Almennt | |
| Stofnár | 1999 |
| Grunnmynt | ISK |
| Lágm.kaup/áskr. | 10.000 kr./5.000 kr. |
| Rekstraraðili | Íslandssjóðir hf. |
| Vörsluaðili | Íslandsbanki hf. |
| Sjóðsstjórn | Loftur Ólafsson |
| Þóknanir | |
| Kostn. við kaup/áskrift | 2,0%/1,5% |
| Árl. umsj.laun* | 1,00% + árangurstengt |
| Afgreiðslugjald | 300 kr. |
| Viðskiptapantanir | |
| Kaup/innlausn | 3 viðsk.dagar (T+3) |
| Viðmiðunartími | kl. 15:20 |
| *Verði árangur við ávöxtun Heimssafns umfram viðmiðunarvísitölu reiknast 10% af þeim árangri sem árangurstengd umsjónarlaun að teknu tilliti til stærðar sjóðsdeildar í hverjum mánuði. | |
Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Greiða skal 10% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun sem fellur til fyrir 1. júlí 2009. Skv. breytingu á lögum 94/1996 með bráðabirgðaákvæði í lögum 70/2009 ber að greiða 15% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2009. Frá 1. janúar 2010 ber að greiða 18% fjármagnstekjuskatt.
Sjóðnum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á hlutabréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna hlutdeildarskírteina eða vegna markaðsaðstæðna enda sé það hluti af eignastýringu sjóðsins. Fjárfestum er bent á nánari útskýringar á beitingu afleiðna í útboðslýsingu sjóðsins.
Skattlagning
Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Skv. breytingu á lögum 94/1996 með bráðabirgðaákvæði í lögum 70/2009 ber að greiða 15% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun frá 1. júlí 2009 til 31. desember 2009. Frá 1. janúar 2010 ber að greiða 18% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun.
Fjárfesting í afleiðum
Sjóðnum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á skuldabréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fjárfestum er bent á nánari útskýringar á beitingu afleiðna er að finna í útboðslýsingu sjóðsins.
Fjárfestingu í verðbréfasjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfasjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins, sérstaklega umfjöllun um áhættur, sjá nánar undir Ítarefni hér að ofan.
Gengisþróun og ávöxtun
Í línuriti gengisþróunar er birt gengi viðkomandi sjóðs sl. eitt ár. Ef sjóður er ekki orðinn ársgamall er birt gengissaga frá stofnun hans. Nafnávöxtun tímabila sem eru styttri en eitt ár er ekki reiknuð upp á ársgrundvöll heldur er þar um gengisbreytingu að ræða. Nafnávöxtun tímabila sem ná yfir eitt ár og meira er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Uppreikningur ávöxtunar miðast ávallt við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ráðgjafar Eigna- og lífeyrisþjónustu eru við símann
Sími: 440 4920
eignastyring@islandsbanki.is
Þú getur einnig komið og hitt ráðgjafa á Kirkjusandi, 4. hæð.