Mondo - Alþjóðleg hlutabréf

Athugið að sökum breytinga á lögum um gjaldeyrismál nr. 87/1992 til að hefta fjármagnsflæði frá landinu þá er tímabundið lokað á fjárfestingar í verðbréfasjóðum í erlendum gjaldmiðlum nema í tilfellum endurfjárfestinga. Bent er á Eigna- og lífeyrisþjónustu Íslandsbanka, í síma 440 4920 fyrir frekari upplýsingar.

Markmið og fjárfestingarstefna

Markmið sjóðsins er að leitast við að ná fram hækkun eigna til lengri tíma með fjárfestingum aðallega í hlutabréfum og hlutabréfatengdum verðbréfum víðsvegar um heim. Stefna sjóðsins er að bjóða upp á virka stýringu og víðtæka dreifingu fjárfestinga í mismunandi atvinnugreinum á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn mun leitast við að ná betri ávöxtun en MSCI heimsvísitalan (Morgan Stanley Capital International World Index) reiknuð í evrum.

Rekstraraðili sjóðsins er Glitnir Asset Management  í Lúxemborg. Sjóðnum er stýrt af eignastýringarfyrirtækinu FIM í Finnlandi og hefur hann sömu fjárfestingastefnu og FIM Mondo sjóðurinn sem skráður er í Finnlandi.

Sjá nánar um FIM Mondo

Fyrir hvern er sjóðurinn?

MONDO hentar bæði almennum fjárfestum og fagfjárfestum sem vilja taka þátt í fjárfestingum á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum og hafa áhuga á að fela utanaðkomandi aðila virka stýringu á eignasöfnum sínum á erlendum hlutabréfamörkuðum. Sjóðurinn kann að henta best þeim fjárfestum sem vilja ávaxta fé til langs tíma (í 5 ár eða lengur) því tap getur myndast vegna markaðssveiflna.

Aðrar upplýsingar um sjóðinn
Árleg umsjónarlaun* 1,5%
Gengismunur 2,0%
Mynt Evra (€)
Stofnár 2007
Lágmark við kaup einstaklinga/reglulega áskrift* €1.000 / €100
Sjóðstjóri Markku Kaloniemi
Nánari upplýsingar Sjá nánar um FIM Mondo
Útboðs- og skráningarlýsing Útboðslýsing SICAV 1
Útdráttur sjóðsins
Ársskýrsla Ársskýrsla SICAV 1
* Sjá nánar um flokk C fyrir fagfjárfesta í útboðslýsingu.

Skattlagning

Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996.  Samkvæmt bráðabirgðaákvæði við lög nr. 94/1996, í lögum nr. 70/2009 um ráðstafanir í ríkisfjármálum, ber að greiða 15% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismuni söluverðs hlutdeildarskírteinis annars vegar og kaupverði og þóknun hinsvegar á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2009.  Skattur á fjármagnstekjur fyrir 1. júlí 2009 er 10%.

Athygli er vakin á því að skattameðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Áhætta

Fjárfestingu í verðbréfasjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfasjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum.  Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki  vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu Mondo - Alþjóðleg hlutabréf, sérstaklega umfjöllun um áhættur. Sjá nánar útboðslýsingu sjóðsins eða í útdrætti úr útboðslýsingu.

Umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.


Hafðu samband