
Hentugur fjárfestingartími 2 ár+
Eignasafnið er ný tegund af sparnaði með virkri stýringu sem til þessa hefur eingöngu verið í boði fyrir stærri fjárfesta. Sparnaðurinn er í umsjá sérfræðinga Eignastýringar sem aðlaga fjárfestinguna að þeim breytingum sem verða á markaði.
Vel dreifður sparnaður í virkri stýringu sem er ávallt laus til innlausnar.
Fjárfesta í sjóði Upplýsingablað
Langtímahækkun eigna með fjárfestingum í verðbréfasjóðum og öðrum sjóðum sem fjárfesta í innlendum og erlendum skuldabréfum sem og hlutabréfum eða öðrum fjármálagerningum tengdum verðbréfum.
Sjóðurinn hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í tvö ár eða lengur og þola nokkrar verðsveiflur. Sjóðurinn fjárfestir að stærstum hluta í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Sjóðurinn fjárfestir einnig beint í innlendum og erlendum skuldabréfum og innlendum og erlendum hlutabréfum.
Markmið sjóðsins er að fjárfesta 55% í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs og 15% í innlánum fjármálastofnana. Þar að auki stefnir sjóðurinn á að eiga 5% í innlendum hlutabréfum og 25% í erlendum hlutabréfum. Heimilt er að auka vægi ríkisskuldabréfa upp í 100%, annarra skuldabréfa upp í 40%, innlána upp í 50% og innlendra hlutabréfa upp í 15% og erlendra hlutabréfa upp í 35%.
| Ítarefni | |
|---|---|
| Upplýsingablað | |
| Ávöxtunarblað sjóða | |
| Útboðslýsing sjóðsins | |
| Útdráttur úr útboðslýsingu | |
| Ársreikn. Íslandssjóða hf. | |
| Verðskrá | |
| Almennt | |
| Stofnár | 2009 |
| Grunnmynt | ISK |
| Lágm.kaup/áskr. | 10.000 kr./5.000 kr. |
| Rekstraraðili | Íslandssjóðir hf. |
| Vörsluaðili | Íslandsbanki hf. |
| Sjóðstjórn | Birna Jenna Jónsdóttir, Sjóðsstjóri |
| Loftur Ólafsson, Sjóðsstjóri | |
| Mogens G. Mogensen, Sjóðsstjóri | |
| Sigurður Guðjón Gíslason, Safnastjóri | |
| Þóknanir | |
| Kostn. við kaup | 1,50% |
| Árl. umsj.laun | 0,50% |
| Afgreiðslugjald | 300 kr. |
| Viðskiptapantanir | |
| Kaup/innlausn | 2 viðsk.dagar (T+2) |
| Viðmiðunartími | kl. 15:20 |
Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Skv. breytingu á lögum 94/1996 með bráðabirgðaákvæði í lögum 70/2009 ber að greiða 15% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun frá 1. júlí 2009 til 31. desember 2009. Frá 1. janúar 2010 ber að greiða 18% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun.
Sjóðnum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á skuldabréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af eignastýringu sjóðsins. Fjárfestum er bent á nánari útskýringar á beitingu afleiðna í útboðslýsingu sjóðsins.
Skattlagning
Skattlagning hlutdeildarskírteina fer eftir lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Skv. breytingu á lögum 94/1996 með bráðabirgðaákvæði í lögum 70/2009 ber að greiða 15% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun frá 1. júlí 2009 til 31. desember 2009. Frá 1. janúar 2010 ber að greiða 18% fjármagnstekjuskatt af jákvæðum mismun söluverðs hlutdeildarskírteinis að frádregnu kaupverði og þóknun.
Fjárfesting í afleiðum
Sjóðnum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á skuldabréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fjárfestum er bent á nánari útskýringar á beitingu afleiðna er að finna í útboðslýsingu sjóðsins.
Fjárfestingu í verðbréfasjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfasjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins, sérstaklega umfjöllun um áhættur, sjá nánar undir Ítarefni hér að ofan.
Gengisþróun og ávöxtun
Í línuriti gengisþróunar er birt gengi viðkomandi sjóðs sl. eitt ár. Ef sjóður er ekki orðinn ársgamall er birt gengissaga frá stofnun hans. Nafnávöxtun tímabila sem eru styttri en eitt ár er ekki reiknuð upp á ársgrundvöll heldur er þar um gengisbreytingu að ræða. Nafnávöxtun tímabila sem ná yfir eitt ár og meira er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Uppreikningur ávöxtunar miðast ávallt við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Ráðgjafar Eigna- og lífeyrisþjónustu eru við símann
Sími: 440 4920
eignastyring@islandsbanki.is
Þú getur einnig komið og hitt ráðgjafa á Kirkjusandi, 4. hæð.