
Íslandsbanki býður upp á úrval sjóða, bæði innlenda og erlenda sem fjárfesta ýmist í skuldabréfum, hlutabréfum og/eða öðrum fjármálagerningum. Sjóðir eru góð leið fyrir þá sem vilja fjárfesta í safni verðbréfa, og dreifa þannig áhættunni. Einfalt mál er að kaupa í verðbréfasjóðum, lágmarks kaup eru yfirleitt 10.000 kr. og einnig er hægt að vera í reglulegri áskrift að sjóðum.
Sjóðir sem viðskiptavinum Íslandsbanka standa til boða skiptast í þrjá flokka, skuldabréfasjóði, hlutabréfasjóði og erlenda verðbréfasjóði og eru starfræktir af Íslandssjóðum hf. sem er með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingarsjóða og er í eigu Íslandsbanka hf.
| Skuldabréfasjóðir | Mynt | Fjárf. tími | Kaupgengi | Nafnávöxtun (%) | ||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 6 m. | 1 ár | 2 ár | 3 ár | |||||||||
![]() | Veltusafn - innlán, ríkisbréf og víxlar | ISK | 1 m+ | 1.046,72 | 4,3 | - | - | - | ![]() | ![]() | ||
![]() | Ríkissafn - ríkisskuldabréf og innlán | ISK | 1 ár+ | 1.166,29 | 5,1 | 11,5 | - | - | ![]() | ![]() | ||
![]() | Sjóður 5 - ríkisskuldabréf | ISK | 2 ár+ | 7.158,00 | 9,0 | 19,5 | 19,2 | 17,5 | ![]() | ![]() | ||
![]() | Sjóður 7 - löng ríkisskuldabréf | ISK | 3 ár+ | 3.568,00 | 9,6 | 21,0 | 20,0 | 17,4 | ![]() | ![]() | ||
| Blandaðir sjóðir | ||||||||||||
![]() | Eignasafn | ISK | 2 ár+ | 1.085,90 | 7,4 | - | - | - | ![]() | ![]() | ||
| Hlutabréfasjóðir | ||||||||||||
![]() | Sjóður 6 - aðallistinn | ISK | 5 ár+ | 1.347,00 | 14,8 | 49,5 | -65,0 | -57,2 | ![]() | ![]() | ||
![]() | Sjóður 10 - úrval innlendra hlutabréfa | ISK | 5 ár+ | 769,00 | 23,2 | 57,6 | -60,2 | -53,0 | ![]() | ![]() | ||
![]() | Heimssafn | ISK | 5 ár+ | 1.645,48 | 6,3 | 72,7 | 17,0 | 15,4 | ![]() | ![]() | ||
![]() | Glitnir FIM MONDO | EUR | 5 ár+ | 8,77 | 6,3 | 57,7 | -3,3 | - | ![]() | ![]() | ||
Fjárfestingu í verðbréfasjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfasjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum.
Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins, sérstaklega umfjöllun um áhættu. Umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Nafnávöxtun tímabila sem eru styttri en en eitt ár er ekki reiknuð upp á ársgrundvöll. Þar er um hreina gengisbreytingu að ræða. Nafnávöxtun tímabila sem ná yfir eitt ár og lengra er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Uppreikningur ávöxtunar miðast ávallt við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.