
Í Netbanka Íslandsbanka gefst viðskiptavinum kostur á að stunda viðskipti með hlutabréf og verðbréfasjóði. Viðskiptatilboð Netbankanotenda streyma beint inn í viðskiptakerfi kauphalla og hægt er að fylgjast með stöðu þeirra í rauntíma. Ítarleg eigna- og viðskiptayfirlit gefa síðan stöðuna á hverjum tíma.
*Athugið að sökum breytinga á lögum um gjaldeyrismál nr. 87/1992 til að hefta fjármagnsflæði frá landinu þá er tímabundið lokað á viðskipti með hlutabréf í erlendum gjaldmiðli í Netbanka. Bent er á Eigna- og Lífeyrisþjónustu Íslandsbanka, í síma 440 4920 fyrir frekari upplýsingar.
Lögð er áhersla á þægindi og einfaldleika sjónarmið viðskiptavina að leiðarljósi. Sama viðmótið gildir hvort sem verið er að kaupa eða selja hlutabréf í Marel, Mærsk eða Macy's. Einfalt er að eiga viðskipti með gjaldeyri og yfirlit verðbréfaeignar sýnir ávallt nýjustu stöðu verðbréfasafns viðskiptavinar.
Núverandi notendur að Netbanka Íslandsbanka sem vilja opna aðgang sinn að verðbréfum í Netbanka, gera það með því að smella hér að neðan. Samþykkja þarf skilmála verðbréfaviðskipta í leiðinni.
Aðilar sem ekki eru með Netbanka þurfa fyrst að stofna slíkan aðgang. Það er hægt að gera rafrænt með því að smella á tengilinn hér að neðan. Eftir að þú hefur fyllt út umsóknina er aðgangsorð sent til þín í ábyrgðarpósti.
Stofna verðbréfaaðgang Sækja um Netbankann
Starfsfólk Eigna- og Lífeyrisþjónustu veitir allar nánari upplýsingar um þjónustuna. Síminn er 440 4920 eða sendið okkur póst á verdbref@islandsbanki.is.
Ráðgjafar Eigna- og lífeyrisþjónustu eru við símann
Sími: 440 4920
eignastyring@islandsbanki.is